Úkraína og Norður-Makedónía mættust í fyrsta leik dagsins á Evrópumótinu í knattspyrnu. Leiknum lauk með 2-1 sigri Úkraínu.
Úkraínumenn byrjuðu leikinn betur og stjórnuðu leiknum til að byrja með. Yarmolenko kom Úkraínumönnum yfir eftir um hálftíma leik með marki eftir hornspyrnu þar sem boltinn datt fyrir Yarmolenko á fjær. Yaremchuk tvöfaldaði forystu Úkraínumanna stuttu seinna þegar hann fékk sendingu í gegnum vörn Makedóníu.
Goran Pandev kom boltanum í netið undir lok fyrri hálfleiks með flottum tilþrifum en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Seinni hálfleikur spilaðist á svipaðan hátt en Norður-Makedónar fengu víti snemma í seinni hálfleik. Alioski brenndi af en náði að fylgja á eftir og minnkaði metin. Úkraínumenn fengu vítaspyrnu undir lok leiks en Malinovskiy lét verja frá sér. Ekki komu fleiri mörk í leikinn og 2-1 sigur Úkraínu staðreynd.
Úkraína er í 3. sæti riðilsins með 3 stig en Norður-Makedónía situr á botninum án stiga.
Úkraína 2 – 1 Norður-Makedónía
1-0 Yarmolenko (´29)
2-0 Yaremchuk (´34)
2-1 Alioski (´57)