fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
433Sport

Vestmannaeyjar nötra vegna málsins – „Þetta er stafrænt ofbeldi og viðbrögðin eru mjög eðlileg“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 28. apríl 2021 13:51

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á hverri einustu kaffistofu í Vestmannaeyjum er nú rætt um framherjan Gary Martin og ástæðu þess að hann var rekinn frá ÍBV fyrr í dag. Samkvæmt heimildum skiptist fólk í tvo hópa, á meðan sumir telja ákvörðunina rétta telja aðrir að búið sé að gera úlfalda úr mýflugu.

Á sunnudag vann ÍBV fínan sigur á Reyni Sandgerði í bikarnum, þegar verið var að fagna í klefanum tók Gary Martin upp Snapchat-myndband þar sem sést í naktan liðsfélaga hans. Umrætt efni var síðan sent á leikmenn ÍBV sem allir voru staddir í klefanum, leikmaðurinn umræddi sem myndin var tekin af brást illa við og lagði fram kæru á hendur Gary Martin.

ÍBV greindi frá því í morgun að Gary hefði framið agabrot en skömmu síðar var greint frá því að búið væri að kæra Gary vegna málsins.

„Við erum 15-20 leikmenn með lokaða spjallrás þar sem við sendum Snapchat, myndir og skilaboð milli okkar. Oftar en ekki hef ég fengið minn skammt af stríðni og myndum og tekið því misvel eins og gengur,“ sagði Gary í yfirlýsingu fyrr í dag.

Nektarmynd ástæða þess að Gary var rekinn frá Eyjum – Kært hefur verið í málinu

Samkvæmt heimildum 433.is eru margir leikmenn ÍBV ósáttir með málið og hvernig það hefur þróast, þeir telja að umræddur leikmaður og Gary hefðu getað klárað málið sín á milli með aðstoð stjórnar knattspyrnudeildar. Ekki hafi þurft að leggja fram kæru og rifta samningi Gary Martin við knattspyrnudeild ÍBV.

Enski framherjinn fullyrðir að fjöldinn af leikmönnum hafi birst naktir í þessum lokaða hópi. „Þetta er ekki fyrsta myndin á spjallrás okkar sem sýnir einhvern beran. Það hefur t.a.m. komið mynd þar af mér allsberum í vetur sem ég gerði engar athugasemdir við. Þetta og fleira eru margir leikmenn tilbúnir að staðfesta,“ skrifar Gary.

Blaðamaður hefur í dag rætt við fjölda aðila sem þekkja til málsins. Heimildarmaður 433 segir að málið hafi verið mjög erfitt fyrir þjálfarateymið og stjórn knattspyrnudeildar. Þannig sé umræddur leikmaður sem lagt hefur fram kæru nátengdur inn í bæði þjálfarateymið og í stjórn knattspyrnudeildar.

Mörgum þykir málið stormur í vatnsglasi en aðrir eru ósammála því, þannig sagði einn heimildarmaður. „Svona myndir á aldrei að birta eða senda frá sér án leyfis, þetta er stafrænt ofbeldi og viðbrögðin eru því mjög eðlileg. Það að þetta hafi áður verið gert í leikmannahópi ÍBV réttlætir þetta ekki á neinn hátt,“ sagði heimildarmaður DV.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Liverpool farið að skoða markmenn fyrir sumarið – Nokkrir úr úrvalsdeildinni á blaði en þessi er efstur

Liverpool farið að skoða markmenn fyrir sumarið – Nokkrir úr úrvalsdeildinni á blaði en þessi er efstur
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Sturlaður leikur í París – Allt opið í hálfleik

Sturlaður leikur í París – Allt opið í hálfleik
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Enska úrvalsdeildin geti upplifað martröð á næstunni – Trúðverugleiki hennar hugsanlega í vaskinn vegna alvarlegra brota City

Enska úrvalsdeildin geti upplifað martröð á næstunni – Trúðverugleiki hennar hugsanlega í vaskinn vegna alvarlegra brota City
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Óvænt orðaður við Manchester United á dögunum en sögusagnir eru um að fleiri ensk stórlið fylgist með honum

Óvænt orðaður við Manchester United á dögunum en sögusagnir eru um að fleiri ensk stórlið fylgist með honum
433Sport
Fyrir 22 klukkutímum

Gætu flutt liðið frá Kanada til Las Vegas á næstunni

Gætu flutt liðið frá Kanada til Las Vegas á næstunni
433Sport
Fyrir 23 klukkutímum

Kveður City með hjartnæmu myndbandi – 19 stórir titlar á farsælum ferli

Kveður City með hjartnæmu myndbandi – 19 stórir titlar á farsælum ferli
433Sport
Í gær

Árni orðaður við endurkomu til Breiðabliks – Hollendingur sagður vera til taks ef það klikkar

Árni orðaður við endurkomu til Breiðabliks – Hollendingur sagður vera til taks ef það klikkar
433Sport
Í gær

Albert borgaði rúman hálfan milljarð fyrir þessa glæsilegu íbúð í Reykjavík

Albert borgaði rúman hálfan milljarð fyrir þessa glæsilegu íbúð í Reykjavík