Gary Neville, sérfræðingur Sky Sports. telur að Manchester United sé ekki á þeim stað núna að geta orðið Englandsmeistarar á þessu tímabili. Liðið situr á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir 18 leiki.
Liverpool og Manchester United, mættust í gær í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn endaði með 0-0 jafntefli.
Ég trúi því staðfastlega að þetta lið sé ekki tilbúið til þess, hugarfarslega, að geta aðlagast þessum aðstæðum. Fyrir 7-8 vikum var talað um að knattspyrnustjóri liðsins væri við það að missa starf sitt og nú eiga þeir að hugsa með sér að þeir geti unnið deildina,“ sagði Neville í útsendingu Sky Sports.
Neville segir að skoðanir sínar samsvari skoðunum stuðningsmanna Manchester United.
„Þetta er ekki meistaralið. Ekki halda það að stuðningsmenn félagsins eða sérfræðingar um knattspyrnu, telji að Manchester United muni verða Englandsmeistarar á þessu tímabili. Þeir eiga möguleika en það er ekki búist við því. Þegar liðið er tilbúið, þá mun það gerast ,“ sagði Gary Neville, sérfræðingur Sky Sports.
Manchester United er í 1. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 37 stig eftir 18 leiki, tveimur stigum meira en Manchester City sem situr í 2. sæti og á leik til góða.