Það var lítil vinátta þegar slagurinn um Vesturland fór fram í dag þegar ÍA tók á móti Víkingi Ólafsvík í æfingaleik.
Iðulega þegar slíkir leikir fara fram er lítil harka og allir reyna að sleppa ómeiddir af velli.
Í leiknum í dag voru hins vegar mikil læti þegar Skagamenn unnu 2-1 sigur.
Sindri Snær Magnússon leikmaður ÍA fékk að líta rauða spjaldið og Gonzalo Zamorano leikmaður Ólafsvíkur hefði með réttu átt að fá rautt spjald.
Dómari leiksins Ívar Orri Kristjánsson hafði í nægu að snúast og hótaði meðal annars að flauta leikinn af. „Alltaf sama helvítis kjaftæðið,“ mátti heyrast úr stúkunni.
Lætin í dag má sjá hér að neðan.
Það helsta úr æfingaleik ÍA gegn Víkingum frá Ólafsvík #fotboltinet pic.twitter.com/ub0R4LG9jo
— ÍATV (@ia_sjonvarp) May 30, 2020