Xherdan Shaqiri fékk óvænt tækifæri í byrjunarliði Liverpool í kvöld sem spilar við Everton.
Staðan er 4-2 fyrir Liverpool þessa stundina og komst vængmaðurinn á blað í fyrri hálfleik.
Það sem vekur þó athygli er að Shaqiri virðist hafa skellt sér í hárígræðslu nýlega.
Svissnenski landsliðsmaðurinn hefur ekkert fengið að spila á tímabilinu og hefur því haft smá tíma fyrir sig.
Miðað við myndir kvöldsins þá hefur hann skellt sér í ígræðslu eins og má sjá hér.
Shaqiri verið frá lengi enda var hann önnum kafinn við að henda í rosalega ígræðslu. pic.twitter.com/LGYHOgVhyk
— Sigurbergur Elisson (@sigurbergur23) 4 December 2019