Yfirþjálfari Knattspyrnufélags ÍA
Laust er til umsóknar starf yfirþjálfara hjá Knattspyrnufélagi ÍA (KFÍA). Um er ræða yfirumsjón með um 500 iðkendum knattspyrnufélagsins, jafnt stelpur sem strákar, sem æfa knattspyrnu við einar bestu aðstæður á landinu. Þjálfarar félagsins eru um 30 talsins og mikil tækifæri fyrir réttan aðila til að taka þátt í að þróa og móta framtíð KFÍA, móta framtíðar starfsumhverfi með góðu samstarfsfólki og taka þátt í öflug starfi á Akranesi. Samhliða starfinu er gert ráð fyrir að viðkomandi þjálfi hjá félaginu.
KFÍA leitar að kraftmiklum leiðtoga til að taka að sér yfirþjálfara starf félagsins. Viðkomandi er ábyrgur fyrir útfærslu á afreks- og uppeldisstefnu félagsins í samstarfi við framkvæmdastjóra og stjórnir félagsins. Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Starfssvið:
Yfirumsjón með uppeldisstarfi og afreksþjálfun félagsins, í nánu samstarfi við Uppeldissvið félagsins.
Yfirumsjón með þjálfun og þjálfurum
Eftirlit með tekjum og kostnaði við uppeldisstarf félagsins, í samstarfi við framkvæmdastjóra
Skipulagning á æfingatöflum félagsins, vetur og sumaræfingar
Taka þátt í að móta og skipuleggja afreksstarfs félagsins
Skipulagningu og verkaskipting aðstoðarþjálfara
Skipuleggja foreldrafundi og starf foreldraráða, í samstarfi við framkvæmdarstjóra
Þjálfun samhliða yfirþjálfarahlutverkinu
Þátttaka í verkefnum innan félagsins varðandi mót og viðburði á vegum þess.
Önnur tilfallandi störf út frá skrifstofu félagsins, unnin í samráði við framkvæmdar- og skrifstofustjóra félagsins
Yfirumsjón með þjálfun og þjálfurum félagsins nær til allra flokka á vegum félagsins, ef frá eru taldir meistaraflokkar karla og kvenna. Þetta skal unnið í samráði við framkvæmdarstjóra félagsins og uppeldissvið.
Menntunar og hæfniskröfur
UEFA – A þjálfaragráða er skilyrt af KSÍ eða þarf að vera í farvatninu
Reynsla af þjálfun nauðsynleg
Góðir skipulags- og stjórnunarhæfileikar og hæfni í mannlegum samskiptum
Sjálfstæði í starfi og hæfileiki til að vinna með öðrum
Drifkraftur og frumkvæði
Hæfileiki til að tjá sig í rituðu og töluðu máli
Brennandi áhugi á knattspyrnu
Jákvæðni og vera tilbúin að takast á við nýjungar
Áhugasamir vinsamlegast sendi inn umsókn og ferilskrá á sigurdur@kfia.is fyrir 31. ágúst 2018. Hægt er að hafa samband við Sigurð Þór Sigursteinsson framkvæmdarstjóra Knattspyrnufélags ÍA í síma 862-6700 eða í gegnum tölvupóst, sigurdur@kfia.is ef frekari upplýsinga er óskað.