fbpx
Mánudagur 08.júní 2026
Fréttir

Sæborg og Alda segjast hafa verið að grínast

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 25. apríl 2018 17:01

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sæborg Ninja Guðmundsdóttir og Alda Villiljós fullyrða að öll ummæli sem féllu í hlaðvarpsþættinum Hvað er svona merkilegt hafi verið kaldhæðni í samtali við Stundina. Stundin fullyrðir að þær hlægi meðan öll ummælin falla en sé hlustað á hlaðvarpið má einungis greina hlátur þegar Sæborg segir að karlar séu slæmir fyrir samfélagið. Þegar Sæborg lætur þyngstu ummælin falla, líkir körlum við kakkalakka, þá má ekki greina neinn hlátur. Rétt er þó að taka fram að Alda segir snemma í fyrra þættinum að það sé fáránleg hugmynd að „femínismi snúist um það að við viljum útrýma öllum karlmönnum“.

Þær segja að markmið ummælanna hafi verið að vekja fólk til umhugsunar. „Já, við höfum sagt í djóki að við og femínistar almennt vilji í raun taka yfir heiminn, útrýma karlkyninu eins og það leggur sig, halda nokkrum karlmönnum eftir sem „breeding machines“ og þrælum, og svo framvegis. Þessi frétt er rosa mikið að koma höggi á femínista sem þora að tala og taka pláss,“ hefur Stundin eftir Öldu.

Hlaðvarpið birtist fyrst fyrir nokkrum mánaðarmótum en vakin var athygli á því á Pírataspjallinu fyrir fjórum dögum þegar til stóð að þær myndu halda erindi á vegum Femínistafélags flokksins. Í kjölfar þess birti íslenski myndbandsbloggarinn Lord Pepe myndband um málið. Það myndband fór víða en þar klippti hann út og birti eldfimustu ummæli Sæborgar og Öldu.

Líkt og DV hefur áður greint frá þá má gróflega staðsetja hugmyndafræði hans innan Alt-Right, stefnu aðskilur sig einna helst frá hefðbundnar hægristefnu með andstöðu við hnattvæðing og fjölmenningu. Lord Pepe, Brynjólfur Sveinn Ívarsson, birtir þó ummæli Sæborgar og Öldu óbreytt. Hér fyrir neðan má sjá myndband hans. Á mínútu fjögur má heyra ummæli þeirra um karlmenn sem lemja konunnar sínar og á mínútu níu má heyra ummælin um karla og kakkalakka. Líkt og fyrr segir þá fullyrða þær báðar að ummælin hafi verið léttúð.

Uppfært – leiðrétting frá Brynjólfi 

Brynjólfur Sveinn Ívarsson, gerir athugasemdir við að vera flokkaður sem Alt-Right í stjórnmálaskoðunum sínum og skilgreinir sig sem frjálslyndan hægrimann/þjóðernissinna/femínista eða bara klassískan frjálshyggjumann.

 

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Origi kallar þetta gott
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas

Hent út af framboðslistum eftir að hafa lofað voðaverk Hamas
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni

Buguð vegna ónæðis frá framkvæmdunum á Orkureitnum og krafðist afsláttar af leigunni
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð

Ósáttur við heilbrigðiseftirlitið, lögregluna og sýslumann – Hafi eyðilagt viðburð
Fréttir
Fyrir 3 dögum

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu

Pútín segir að aðeins tveir möguleikar séu í stöðunni í Úkraínu