fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
FókusKynning

Systur gefa hugmynd að fallegum aðventukransi

Gamaldags skreyting með rómantísku ívafi

Kristín Clausen
Miðvikudaginn 30. nóvember 2016 20:30

Gamaldags skreyting með rómantísku ívafi

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á dögunum létu systurnar Katla og María Krista Hreiðarsdætur, sem eru eigendur verslunarinnar Systur & Makar, mynd af fallegum aðventukransi í Facebook-hópinn Skreytum hús. Aðrir notendur voru fljótir að taka við og „lækin“ og ummælin hrönnuðust inn.

Fallegt er að koma kertunum fyrir á löngum bakka eða kökustandi og skreyta síðan að vild.
María gaf öllum þeim sem vildu aðgang að skjölunum Fallegt er að koma kertunum fyrir á löngum bakka eða kökustandi og skreyta síðan að vild.

Mynd: Systur&Makar

Það er hægt að útfæra aðferðina á margan hátt. Til dæmis með því að líma ysta lagið á fallegri servíettu á kerti eða prenta út fallegar myndir.

Þrátt fyrir að vera í lítilli dós er það mjög drjúgt.
Kertalímið fæst í öllum helstu föndurbúðum Þrátt fyrir að vera í lítilli dós er það mjög drjúgt.

Mynd: Úr einkasafni

Til dæmis hefur verið vinsælt að líma mynd af barnabörnunum og gefa ömmu og afa í jólagjöf. Það sem skiptir mestu máli, þegar kertaskreytingar eru gerðar úr pappír er að hann sé örlítið þykkari en hefðbundinn prentpappír. Áferðin er sömuleiðis önnur. Kertapappírinn fæst í bóka- og föndurbúðum og er til í nokkrum litatónum.

Ákváðu að gefa hönnunina

Systurnar, sem eru báðar hönnuðir, ákváðu að gefa öllum þeim sem vildu pdf-skjöl með áletrun og myndum til að líma á kerti. Það gerðu þær til að flestir ættu þess kost að útbúa sinn eigin aðventukrans, en fyrsti í aðventu var síðastliðinn sunnudag.

Veist þú hvað aðventukransinn táknar

Byggir á norðurevrópskri hefð

Aðventukransinn byggist á norðurevrópskri hefð. Hið sígræna greni táknar lífið sem er í Kristi og hringurinn táknar eilífðina. Fyrsta kertið nefnist spádómskertið og minnir á fyrirheit spámanna Gamla testamentisins er höfðu sagt fyrir um komu frelsarans. Annað kertið nefnist Betlehemskertið. Þar er athyglinni beint að þorpinu sem Jesús fæddist í, og þar sem ekkert rúm var fyrir hann. Þriðja kertið nefnist hirðakertið en snauðum og ómenntuðum fjárhirðum voru sögð tíðindin góðu á undan öllum öðrum. Fjórða kertið nefnist síðan englakertið og minnir okkur á þá sem báru mannheimi fregnirnar.

Aðventukransinn, sem talinn er vera upprunninn í Þýskalandi á fyrri hluta 19. aldar, barst til Suður-Jótlands og varð algengur í Danmörku eftir 1940. Frá Danmörku barst þessi siður til Íslands. Í fyrstu var aðventukransinn aðallega notaður til að skreyta búðarglugga en á milli 1960 og 1970 fór hann að tíðkast á íslenskum heimilum og er nú orðinn ómissandi hluti þessarar árstíðar.

Heimild: Vísindavefurinn

„Ég hef selt aðventukertin síðustu árin en nú langaði mig að bjóða viðskiptavinum okkar þau frítt svona í anda jólanna,“ segir María Krista sem hannaði kertin.

Kveikjan að hönnuninni var að Maríu langaði í gamaldags skreytingu með rómantísku ívafi. Þá ákvað hún að bæta nöfnunum á kertunum við með það fyrir augum að fræða fólk um söguna á bak við aðventukransinn, ekki síst börnin sem bíða spennt eftir því að hátíðin gangi í garð.

Einfalt og sniðugt

„Það fást allar græjur í verkefnið í föndurbúðum. Kertalímið er fljótandi og því gott að bera það á t.d. með lítilli svampmálningarrúllu. Ég skreytti mín kerti í ár aukalega með örlitlu af hvítu glimmer og það kom mjög vel út.“

Næst má slétta úr öllum misfellum eins og hægt er. Gangið frá endanum með aukalími og nuddið vel saman.
Best er að rúlla eina umferð á kertið, og rúlla svo aðra umferð af lími á bakhliðina á myndinni sem fer utan á kertið Næst má slétta úr öllum misfellum eins og hægt er. Gangið frá endanum með aukalími og nuddið vel saman.

Mynd: Úr einkasafni

María hefur gert sinn aðventukrans með þessum hætti undanfarin þrjú ár. Hún hefur ýmist raðað kertunum upp á langan bakka, kökustand eða glerdiska og skreytir á mismunandi hátt hverju sinni.

[[9E8D5840BB]]

„Það þarf þó alltaf að passa vel upp á svona heimatilbúin kerti því það geta orðið slys ef þau fá að loga of lengi í einu. Ég mæli með að settur sé skrautsandur ofan í kertið þegar það er um það bil hálfnað og lauma einu sprittkerti ofan í hólkinn sem myndast eftir að kertið hefur brunnið niður.“

Fyrir áhugasama er hægt að finna skjölin í netútgáfu þessarar greinar á dv.is

Taktu þátt í aðventuleik

Maríu Kristu og Kötlu þætti mjög gaman að fylgjast með og sjá afraksturinn af aðventukransagerðinni. Því biðja þær fólk um að taka mynd af herlegheitunum og merkja myndina #systurogmakar og #systurogmakaradventa

María notaði glimmer á skreytinguna sína í ár.
Síðan má skreyta kertið með glimmeri, blúnduborðum, fjöðrum, snæri eða hverju sem er María notaði glimmer á skreytinguna sína í ár.

Mynd: Systur&Makar

Kertin eru glæsileg.
Stílhrein og falleg hönnun Kertin eru glæsileg.

Mynd: Systur&Makar

„Við munum velja úr einn heppinn þátttakanda og hann fær að launum 20.000 króna gjafabréf í verslun Systra & Maka.“ Skilafrestur rennur út á miðnætti á morgun, 30. nóvember.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum