Sögurnar verða sífellt háværari – Hvar er hann?
Pressan6. maí síðastliðinn, það er dagurinn sem síðast sást opinberlega til Kim Jong-un, einræðisherra í Norður-Kóreu. Nú eru fjölmiðlar farnir að velta fyrir sér hvar hann sé. Það er sérstaklega eitt atriði sem vekur mikla athygli. NK News, sem sérhæfir sig í fréttum um Norður-Kóreu, segir að óvenjulegur atburður hafi átt sér stað nýlega í tengslum við Lesa meira
Munaðarlaus norðurkóresk ungmenni eru send í námu- og byggingarvinnu
PressanMörg hundruð munaðarlaus norðurkóresk ungmenni hafa af fúsum og frjálsum vilja boðið sig fram til starfa í námum í landinu og í landbúnaði og byggingariðnaðinum. Þetta kemur fram í frétt norðurkóresku ríkisfréttastofunnar KCNA frá á laugardag. Segir fréttastofan að rúmlega 700 munaðarlaus ungmenni hafi af „visku og hugrekki ákveðið á besta aldursskeiði sínu“ að vinna á samyrkjubúum Lesa meira
Tölvuþrjótar eru besta vopn Norður-Kóreu
PressanEflaust vita flestir að Norður-Kórea á eldflaugar og kjarnorkuvopn enda hefur einræðisstjórnin verið iðin við að gera tilraunir með þessi vopn og stæra sig af þeim. En það eru kannski ekki þessi vopn sem eru mesta ógnin sem Vesturlöndum stafar af frá þessu harðlokaða einræðisríki. Mesta ógnin er kannski tölvupóstur sem kemur í innhólfið þitt. Lesa meira
„Djöflakonan“ – Lætur taka embættismenn af lífi ef þeir fara í taugarnar á henni
PressanKim Yo-Jong, systir Kim Jong-un einræðisherra í Norður-Kóreu, er í innsta hring hjá bróður sínum og margir telja hana næstvaldamestu manneskjuna í þessu harðlokaða einræðisríki. Að sögn hefur hún að undanförnu látið taka fjölda manns af lífi, stundum fólk sem hafði unnið það eitt sér til saka að „fara í taugarnar á henni“. Radio Free Asia skýrir frá þessu. Embættismenn Lesa meira
Norður-Kórea hefur í hótunum við Bandaríkin – „Hann gerði stór mistök“
PressanStjórnvöld í Norður-Kóreu höfðu um helgina í hótunum við Bandaríkin eftir að Joe Biden, Bandaríkjaforseti, sagði „öryggisógn“ stafa af landinu. Hann ávarpaði Bandaríkjaþing á fimmtudaginn og sagði þá að Norður-Kórea væri „alvarleg ógn við Bandaríkin og öryggi heimsins“. Hann sagðist einnig vilja vinna með bandamönnum Bandaríkjanna að því að leysa vandamálið með lýðræði og fælingarmátt að leiðarljósi. Lesa meira
Norður-Kórea keppir ekki á Ólympíuleikunum vegna smithættu – Er ástæðan kannski önnur?
PressanStjórnvöld í Norður-Kóreu sendu frá sér tilkynningu í gær um að landið muni ekki senda íþróttamenn til keppni á Ólympíuleikunum í Tókýó í Japan í sumar. Ástæðan er að þeirra sögn að of áhættusamt sé fyrir íþróttamennina að keppa vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar. Áður hafði verið tilkynnt að engir erlendir áhorfendur fái að sækja leikana og Lesa meira
Láta undan kröfum Norður-Kóreu og banna áróðurssendingar yfir landamærin
PressanStjórnvöld í Suður-Kóreu hafa látið undan kröfum einræðisstjórnarinnar í Norður-Kóreu um að banna aðgerðarsinnum að senda áróður af ýmsu tagi norður yfir landamæri ríkjanna. Bannið er rökstutt með að það „ógni öryggi“ þeirra Suður-Kóreubúa sem búa nærri landamærunum. Aðgerðarsinnar ætla ekki að láta bannið stoppa sig. Áratugum saman hafa aðgerðarsinnar farið að landamærunum og sent stórar blöðrur norður yfir með Lesa meira
Fyrsti fréttamannafundur Biden – Lofaði hraðari bólusetningu og gagnrýndi Kína
PressanJoe Biden hélt fyrsta fréttamannafund sinn, frá því að hann tók við forsetaembætti, í gær en þá voru 64 dagar liðnir frá embættistökunni. Svona lengi hefur enginn Bandaríkjaforseti látið fréttamenn bíða eftir fyrsta fréttamannafundinum í 100 ár hið minnsta. Biden ræddi eitt og annað á fundinum sem stóð í um 90 mínútur. Hann lofaði til Lesa meira
Norður-Kórea skaut tveimur eldflaugum í átt að Japan í gær
PressanHer Norður-Kóreu skaut tveimur eldflaugum í átt að Japan í gær. Búist hafði verið við þessu vopnabrölti því venjan er að Norður-Kórea geri tilraunir með eldflaugar eða önnur vopn í tengslum við valdaskipti í Bandaríkjunum. Japönsk stjórnvöld segja að önnur eldflaugin hafi flogið um 450 kílómetra áður en hún hrapaði í sjóinn utan við japönsku Lesa meira
Telja að Norður-Kórea sé að undirbúa vopnatilraunir – Þær fyrstu eftir embættistöku Joe Biden
PressanBandarískar leyniþjónustustofnanir telja að Norður-Kórea sé hugsanlega að undirbúa fyrstu vopnatilraunir sínar síðan Joe Biden tók við embætti forseta Bandaríkjanna. CNN skýrir frá þessu og hefur eftir ónafngreindum heimildarmönnum innan bandaríska stjórnkerfisins. Það gæti einnig skýrt tímasetninguna að nú stendur yfir sameiginleg heræfing Bandaríkjanna og Suður-Kóreu sem er þó mun minni að umfangi en til stóð. Það hleypir einnig Lesa meira