fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Pressan

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 14:30

Myndin er samsett með notkun gervigreindar og skjáskots af ja.is.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mjög margir hafa áttað sig á að það er hægt að nota gervigreind til margra hluta. OpenAI segir að ChatGPT takist á við 2,5 milljarða verkefna á sólarhring. Þetta eru allt frá stuttum og einföldum spurningum yfir í verkefni tengd mynd- og myndbandagerð.

Þegar maður notar gervigreindarforritin, þá virðist ekki vera mikill munur á hvort maður spyrji einfaldrar spurningar eða fái aðstoð við að gera langt myndband. En niðurstöður nýrrar rannsóknar sýna að orkunotkun gervigreindarinnar er mjög mismunandi eftir því hvað hún er beðin um. YLE og TechChrunch skýra frá þessu.

Sam Altman, forstjóri OpenAI, sagði eitt sinn að forritið noti 0,34 kílóvattstundir að meðaltali til að svara hverri spurningu. Aðrir segja að flóknar spurningar krefjist mun meiri orku, eða allt að 20 kílóvattstunda.

Munurinn liggur í hversu lengi forritið þarf að reikna, hversu mikinn texta það þarf að búa til og hversu mikillar vinnslugetu er krafist af tölvunni.

MIT Technology Review hefur eftir vísindamönnum að það þurfi um 3,4 milljónir júla þegar gervigreind býr til fimm sekúndna myndband. Þetta jafnast á við orkunotkun örbylgjuofns í eina klukkustund.

Það þarf síðan vatn til að kæla gagnaverin niður og er talið það þurfi um hálfan lítra af vatni fyrir hverjar 20 til 50 spurningar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“
Pressan
Í gær

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri
Pressan
Í gær

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins