fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Fókus

Adam Sandler sendir hinni barnlausu Jennifer Aniston blóm á hverjum mæðradegi

Kristinn H. Guðnason
Sunnudaginn 15. mars 2026 11:30

Aniston og Sandler hafa verið vinir í áratugi.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hollywood leikarinn Adam Sandler sendir vinkonu sinni Jennifer Aniston blómvönd á hverjum mæðradegi. En Aniston á engin börn.

Friends stjarnan greindi frá þessu í nýlegu viðtali við blaðið Wall Street Journal.

Aniston, sem er 57 ára gömul, er barnlaus og hefur verið opinská um vanda sinn með ófrjósemi. Hefur hún meðal annars greint frá því að hafa farið margsinnis í tæknifrjóvganir þegar hún var yngri en ekkert gengið.

„Ár eftir ár eftir ár var ég að velta því fyrir mér hvort þetta væri hægt…. þetta var mjög erfitt. Ég fór í tæknifrjóvganir, drakk kínverskt te, prófaði allt saman,“ sagði Aniston í viðtali við Allure árið 2022.

Segist hún ekki sjá eftir þessum tilraunum en hún sjái eftir því að hafa aldrei geta orðið móðir og að þetta hafi mótað hana sem manneskju.

Einn besti vinur Aniston til áratuga er leikarinn Adam Sandler, sem hefur meðal annars leikið með henni í kvikmyndunum Just Go With It og Murder Mystery. Hann sendir henni blómvönd á hverjum einasta mæðradegi.

Gerir hann þetta til þess að láta hana vita að þó henni hafi ekki lukkast að eignast börn sjálf þá sé hún elskuð og metin til jafns við allar mæður.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“

„Einhver lest sem við settum í gang og fór algjörlega út af sporinu“
Fókus
Í gær

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“

„Ég er ekki að fara að taka yfir heiminn – ég er hér til að hjálpa“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“

Leikkona sakar Katy Perry um kynferðisbrot – „Nuddaði viðbjóðslegu píkunni sinni á andlitið á mér“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“

„Aldur hefur ekkert að gera með hvort þú náir vel saman við einhverja manneskju“
Fókus
Fyrir 6 dögum

Afrika Bambaataa er látinn

Afrika Bambaataa er látinn
Fókus
Fyrir 1 viku

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn

Vinsæll rithöfundur stígur fram eftir 23 ára nafnleysi eftir að hún var sökuð um að vera þrír karlmenn