fbpx
Föstudagur 17.apríl 2026
Pressan

Reyndi að valda konu fósturláti með því að setja sterkt verkjalyf í lasagna

Pressan
Fimmtudaginn 12. mars 2026 21:30

Amber Snow. Lögreglumynd.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kona í Decorah í Iowa-ríki í BNA, hefur verið handtekin og ákærð fyrir byrlun. Er henni gefið að sök að hafa reynt að framkalla fósturlát hjá ófrískri konu með því að byrla konunni og fjölskyldu hennar sterku verkjalyfi sem hún setti í lasagna-rétt.

Hin ákærða heitir Amber Snow og er 36 ára gömul. Hún er í gæsluvarðhaldi. Verkjalyfið sem sett var í réttinn var oxycodone, en það er sterkt verkjalyf úr flokki ópíóða. Rétturinn var borinn á borð fyrir fjölskyldu tveggja fullorðinna og tveggja barna í janúar. Ekki fylgir fréttunum hvaða afleiðingar neyslan hafði á fólkið en sýnishorn af réttinum fóru til lögreglu og tæknideild lögreglunnar fann leifar af lyfinu í sýnishorninu.

Rannsókn lögreglunnar á símagögnum hefur leitt í ljós að Amber Snow og vitorðsmenn hennar ræddu um að byrla fólkinu oxycodone í desember árið 2025. Einnig liggur fyrir að Amber Snow og fjölskyldan sem var byrlað deila forræði yfir barni og barnið vissi um þessar ráðagerðir. Ófríska konan hafði hins vegar enga hugmynd um að verið væri byrla henni lyfinu.

Amber Snow var ákærð þann 10. mars.

Nánar má lesa um málið hér.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“

„Ég vildi óska þess að við hefðum aldrei opnað búðirnar þetta sumar“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar

Kraftaverkabarnið handtekið nærri 40 árum síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja

Ísraelsmenn brjálaðir út í Spánverja
Pressan
Fyrir 3 dögum

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”

„Djöfullinn er til, hann er innra með mér, og ég borðaði mömmu”
Pressan
Fyrir 4 dögum

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár

Björguðu 9 ára dreng sem hafði verið læstur inni í bíl í eitt og hálft ár
Pressan
Fyrir 4 dögum

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps

Langur svefn getur leitt til þyngdartaps