fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 07:30

Airpods frá Apple.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á jóladag braust síbrotamaðurinn Anthony Allen inn í hús eitt í Ashford í Kent í Englandi.  Þetta gerði hann seint að kvöldi á meðan húsráðendur voru í heimsókn hjá ættingjum sínum.

Þegar þeir komu heim blasti ófögur sjón við, Allen hafði farið ránshendi um húsið og rótað og gramsað í flestum hirslum. Hann hafði tekið skartgripi, reiðufé og þráðlausa AirPods.

Húsráðendur skoðuðu upptökur úr eftirlitsmyndavélum hússins og sáu að Allen hafði verið inn í húsinu kl.23.33.

Lögreglan kom að sjálfsögðu á vettvang og tókst henni að rekja slóð AirPodsanna til húss í Stanhope. Þar fann lögreglan Allen í felum uppi á lofti.

Hann var nýlega dæmdur í 26 mánaða fangelsi fyrir innbrotið að sögn Metro.

Húsráðendum þykir það ekki nóg miðað við að Allen hafði áður verið dæmdur 25 sinnum fyrir 55 brot.

En það var ekki nóg með að Allen hafi brotist inn hjá þeim seint um kvöld, því fyrr um daginn var einnig brotist inn hjá þeim. Sem sagt tvö innbrot á sama deginum. Fyrra innbrotið er óupplýst.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins