
Fyrir lok mánaðarins munu ræktendurnir taka 100.000 tonn af kakóbaunum, sem hafa ekki enn verið seld, í hús. Munu ræktendurnir þá sitja uppi með 200.000 tonn af óseldu kakói.
Ástæðan fyrir sölutregðunni er að stjórnvöld settu lágmarksverð á kakóbaunir á síðasta ári og er það mun hærra en núverandi heimsmarkaðsverð. Af þeim sökum selst það ekki.
Birgðasöfnunin hefur haft þau áhrif á verð á kakóbaunum á heimsmarkaði hefur lækkað um helming það sem af er ári og hefur ekki verið lægra í þrjú ár.