fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Pressan

Þessar bílategundir eru líklegastar til að ná 400.000 kílómetrum

Pressan
Laugardaginn 14. mars 2026 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Marga dreymir um að eiga bíl sem er hægt að keyra ár eftir ár án þess að nokkuð stórvægilegt komi upp á. Það sparar manni peninga og auðvitað leiðindin við að leita að nýjum bíl til að kaupa og við að selja gamla bílinn.

Það er því engin furða að spurningar um gæði og líftíma fylli mikið þegar fólk er að leita sér að nýjum bíl.

iSeeCars, sem er bandarískur bílavefur, birti nýlega lista yfir þær bílategundir sem voru með bestu endinguna á síðasta ári.

Listinn var unninn upp úr gögnum um rúmlega 174 milljónir bíla og var sjónunum beint að tegundum sem eru töluvert langt yfir meðallagi líklegar til að duga í rúmlega 400.000 kílómetra.

Fyrir þá sem elska evrópska bíla þá eru niðurstöðurnar vonbrigði því japanskir bílar skara fram úr þegar kemur að endingu. Bílar frá Toyota og Lexus, sem er í eigu Toyota, eru í níu eftstu sætunum.

Í efsta sætinu er Toyota Sequoia en það eru 39,1% líkur á þeir bílar nái 400.000 kílómetrum.

Toyota 4Runner var í öðru sæti og Toyota Highlander Hybrid í því þriðja.

Honda á bílinn í tíunda sæti en það er Honda ridgeline.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því
Pressan
Í gær

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“
Pressan
Í gær

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan
Pressan
Í gær

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“
Pressan
Í gær

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins