fbpx
Mánudagur 16.mars 2026
Pressan

Gæti skeifa leyst 26 ára gamla ráðgátu?

Pressan
Laugardaginn 14. mars 2026 15:30

Skeifan sem fannst á líkinu. Mynd:Írska lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skeifa, sem nafnið MacGinty er rituð í, gæti verið lykillinn að lausn 26 ára gamallar ráðgátu.

Það var í júlí 1999 sem karlmannslík fannst í ánni River Lee, sem er við Cork City á Írlandi. Ekki hefur tekist að bera kennsl á líkið sem er af manni á aldrinum 40 til 60 ára. Hann var ekki með nein skilríki á sér.

BBC segir að lögreglan hafi nýlega hvatt almenning til að skoða myndir af skeifunni.

Talsmaður lögreglunnar sagði að miðað við hvernig nafnið í skeifunni er stafað þá gæti maðurinn hafa komið frá öðru landi.

MacGinty er vinsælt nafn í Skotlandi og á Norður-Írlandi sagði talsmaðurinn og bætti við að það sé algengara að nafnið sé stafað svona í Skotlandi en á Norður-Írlandi.

Krufning leiddi í ljós að maðurinn hafði drukknað en ekki var hægt að skera úr um hversu lengi líkið hafði verið í vatni því það var svo illa farið.

DNA rannsóknir og samanburður skiluðu engum árangri.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 19 klukkutímum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því
Pressan
Í gær

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“
Pressan
Í gær

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan

Verkir í hnakka eru oft tengdir andlegri líðan
Pressan
Í gær

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“

Marjorie Taylor Greene með hrollvekjandi viðvörun varðandi Trump – „Ég held að hann sé ekki að grínast“
Pressan
Í gær

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu
Pressan
Fyrir 2 dögum

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins