
Ung kona, 27 ára að aldri, hefur viðurkennt að hafa stungið kærasta sinn til bana. Ástæðan var sú að hann kom heim til hennar með mat sem þurfti að elda í stað þess að fara með hana á barinn, eins og kemur fram í ákæru.
Atvikið átti sér stað í Wisconsin í Bandaríkjunum. Mikayla Kloth, 27 ára, sagði rannsóknarlögreglumönnum að hún hefði stungið Lukas Rosch, 25 ára, í brjóstið á föstudagskvöldið vegna þess að hún hafði viljað fara út að borða, en hann kom í staðinn heim með „kjúklingaleggi, krydd og ætlaði að nota airfryerinn“, samkvæmt ákærunni.
Hún sagði lögreglunni að Rosch hefði „byrjað að stuða hana“, sem leiddi til rifrildis þeirra á milli sem endaði með því að hún stakk hann. Kloth er sögð hafa játað að hafa stungið Rosch á meðan viðbragðsaðilar framkvæmdu endurlífgun og sagði hún að „ef þau þyrftu að loka hana inni, þá væri það í lagi.“

Þegar ekið var með hana á lögreglustöðina heyrðist hún segja að „hún hefði bara átt að fara á barinn og allt saman væri þetta pirrandi.“
„Þegar verið var að flytja hana á lögreglustöð sagði ákærða að ef foreldrar Rosch hefðu ekki hatað hana áður, þá myndu þeir hata hana núna,“ sagði í ákærunni.
Rosch var fluttur á sjúkrahús þar sem hann var úrskurðaður látinn eftir eitt stungusár í brjóstið. Kloth er ákærð fyrir manndráp af ásetningi fyrsta stigs.
Parið hafði verið saman í um þrjú ár og Rosch heimsótti oft íbúð hennar. Þegar hann sendi henni sms um að koma og elda kvöldmat sagði hún að hún vildi frekar fara út á bar.
Kloth er í haldi gegn tveggja milljóna dollara tryggingu í reiðufé og gæti átt yfir höfði sér lífstíðarfangelsi ef hún verður dæmd sek. Hún mætti fyrst fyrir dómstólinn á mánudag þar sem faðir Rosch, Michael Rosch, sagði fyrir dómi að hann væri eyðilagður eftir andlát sonar síns.
„Vinsamlegast leyfið þessu skrími aldrei að ganga um göturnar aftur,“ sagði hann, samkvæmt myndskeiðum úr réttarsalnum.

„Við erum algjörlega niðurbrotin yfir hörmulegu og tilgangslausu fráfalli sonar okkar, Lukas John Rosch, kærleiksríkasta, gjafmildasta og góðhjartaðasta einstakling sem nokkur gæti kynnst,“ sagði fjölskylda Rosch í yfirlýsingu. „Við biðjum bara um friðhelgi einkalífs á þessum tímapunkti á meðan við reynum að vinna úr málinu.“
Aðeins viku fyrir atvikið sagði Rosch annarri konu og leigusala íbúðarinnar að Kloth hefði bitið hann í þumalinn, samkvæmt kærunni. Leigusalinn sagði að Rosch virtist hræddur við Kloth.