
Tónlistarmaðurinn D4vd hefur verið ákærður fyrir morðið á Celeste Rivas Hernandez. Stúlkan var aðeins 14 ára gömul þegar hún lést en hún og tónlistarmaðurinn kynntust fyrst þegar hún var 11 ára. Talið er að D4vd hafi banað henni eftir að hún hótaði því að greina fjölmiðlum frá sambandi hennar. Hefði það gert út af við feril tónlistarmannsins, en sökum ungs aldurs stúlkunnar gat hún lögum samkvæmt ekki samþykkt kynferðislegt samband við fullorðinn mann og sambandið fól því í sér barnaníð.
Lík stúlkunnar fannst illa farið í Teslu-bifreið tónlistarmannsins í september. Rotnun var langt komin og líkið hafði verið aflimað. D4vd, sem heitir réttu nafni David Anthony Burk, mætti fyrir dóm í gær. Samkvæmt skjölum sem þar voru lögð fram telur ákæruvaldið að D4vd hafi stungið stúlkuna ítrekað með eggvopni. Nokkrum dögum síðar keypti hann verkfæri í gegnum netverslun, þar með talið tvær keðjusagir, uppblásna sundlaug, líkpoka og skóflu. Eins hafi hann keypt tunnu sem er notuð til að brenna úrgang. Telur ákæruvaldið að um búnað hafi verið að ræða sem tónlistarmaðurinn ætlaði að nota til að hluta niður lík stúlkunnar og til að losa sig við sönnunargögn. Hann hafi sagað líkið niður ofan í uppblásnu sundlauginni til að koma í veg fyrir að blóð færi á gólfið í bílskúrnum hans og síðan komið líkamshlutunum fyrir í líkpokunum.
Skilaboð á milli stúlkunnar og D4vd bendi til þess að hún hafi verið afbrýðisöm þar sem tónlistarmaðurinn var að slá sér upp með öðrum konum. Hún hafi hótað því að greina fjölmiðlum frá sambandi þeirra. Að mati ákæruvaldsins lét D4vd til skarar skríða nokkrum dögum eftir þessar hótanir.
Hann er eins sakaður um barnaníð en lögregla hefur gögn í höndunum sem benda til þess að þau hafi átt í kynferðislegu sambandi fljótlega eftir að þau kynntust. Stúlkan hafi orðið þunguð og gengist undir þungunarrof. Klámfengið efni af stúlkunni sem fannst á síma tónlistarmannsins flokkast sem barnaníðsefni.
Hernandez strauk að heiman árið 2024, þegar hún var aðeins 13 ára gömul, til að vera með tónlistarmanninum. Fjölskylda hennar tilkynnti hvarfið til lögreglu. Ferill tónlistarmannsins hafði verið á miklu flugi fyrir handtökuna. Hann sló í gegn á TikTok með slögurum á borð við Romantic Homicide og Here With me. Hann var á tónleikaferðalagi þegar líkamsleifar stúlkunnar fundust eftir að tilkynningar bárust til lögreglu um mikinn óþef sem lagði frá Teslu-bifreið tónlistarmannsins. Talið er að hún hafi legið þar látin mánuðum saman.