
Sky News segir að Sanders hafi fundist meðvitundarlaus á svæði áhafnarmeðlima. Hún stefndi útgerð skipsins og var málið tekið fyrir í Miami í Flórída. Þar úrskurðaði kviðdómur Sanders í vil og komst að þeirri niðurstöðu að útgerðin hefði sýnt af sér vítaverða vanrækslu.
Lögmaður hennar, Spencer Aronfeld, sagði að það sé mikið mál að takast á við stórfyrirtæki eins og Carnival, sem gerir skipið út. En Spencer sé staðföst og hafi ekki viljað gefast upp.
„Málið sýnir hversu hættulegar pakkaferðir, þar sem drykkir eru innifaldir, eru. Þær hvetja til mikillar áfengisneyslu og eru hvati fyrir illa launaða þjóna til að leggja meiri áherslu á þjórfé en öryggi,“ sagði hann.
Aronfeld hélt því fram fyrir dómi að barþjónar hefðu átt að hætta að afgreiða Sanders með áfengi þegar hún var augljóslega orðin drukkin.
Hann sagði einnig að Carnival „hanni skip sín vísvitandi þannig að áfengisafgreiðslur séu í hverju krók og kima“ til að hámarka gróðann.
Sanders fór fram á 50.000 dollara í bætur en kviðdómurinn úrskurðaði að Carnival þurfi að greiða henni 300.000 dollara í bætur.