fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Segir rétt að leita til dýralæknis ef þetta kemur upp hjá hundum

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 16:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margir glíma við andlega vanlíðan yfir veturinn, myrkrið, kuldinn og fjárhagsleg eftirköst jólanna geta haft slæm áhrif á andlegu hliðina. En það eru ekki bara við mennirnir sem glímum við andlega vanlíðan. Hundar sýna oft merki um þunglyndi á veturna.

Þetta kemur fram í umfjöllun Express sem hefur eftir Carolanne Cicero, dýrahjúkrunarfræðingi og ráðgjafa hjá Bella+Duke, að það sé ekki hægt að greina hunda með skammdegisþunglyndi eins og fólk. En hún sagði að samt sem áður séu skýr merki um að veturinn hafi neikvæð áhrif á marga hunda.

„Strangt til tekið, þá þjást hundar ekki af skammdegisþunglyndi eins og fólk. En ef hundurinn þinn virðist vera svolítið „öðruvísi“ þá er það ekki bara ímyndun hjá þér,“ sagði hún.

Hún sagði að sérfræðingar séu almennt sammála um að hundar geti upplifað „vetrardapurleika“ og að merki þess sjáist í breyttri hegðun þeirra.

Algeng merki um að hundur sé niðurdreginn geta verið sljóleiki og lítill áhugi á að hreyfa sig. Margir hundar sofa meira á veturna og sumir hundaeigendur sjá einnig breytingu á matarlyst hundanna. Það getur bæði verið minni áhuga á mat eða þá að hundurinn virðist alltaf vera svangur.

Þess utan geta hundar haldið sig til hlés og missa áhugann á leikföngum og öðru sem þeir hafa gaman af.

Cicero sagði að það sé þrennt sem hundaeigendur eigi að taka sérstaklega alvarlega í þessu samhengi og þurfi að leita skjótt til dýralæknis ef þeir taka eftir þessu hjá hundunum sínum.

Verkir – „Stífleiki eða hægar hreyfingar benda oft til undirliggjandi vanda á borð við gigt, sem verður verri í kulda, frekar en vetrardapurleika,“ sagði hún.

Kvíði – „Ef hundurinn sleikir fæturna mikið eða kjamsar á þeim, þá er það algengt merki um stress eða húðpirring sem þarfnast umönnunar,“ sagði hún.

Tveggja vikna reglan – „Ef einkenni á borð við sljóleika, breytta matarlyst eða að hundurinn haldi sig til hlés, vara í meira en tvær vikur, ætti maður að panta tíma hjá dýralækni til að útiloka að um sjúkdóm sé að ræða,“ sagði hún.

Hún sagði mikilvægt að skýra ekki allar viðvarandi breytingar í hegðun hundsins með árstíðunum því þær geti verið merki um verki eða sjúkdóm sem kalli á meðhöndlun.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband
Pressan
Í gær

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins