fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Á hvaða vikudegi er fólk hamingjusamast?

Pressan
Sunnudaginn 15. mars 2026 16:30

Þessi virðast vera hamingjusöm.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Skap okkar sveiflast frá degi til dags og verður fyrir áhrifum af rútínum okkar, skyldum og þeim stundum sem við getum slakað á. Vísindamenn hafa rannsakað þessa þætti til að skera úr um hvaða vikudagar gera okkur hamingjusöm og má segja að niðurstöðurnar komi á óvart.

Vísindamenn við University College London fylgdust með tæplega 50.000 fullorðnum í tvö ár til að kortleggja hvernig skap þeirra breyttist yfir vikuna. Rannsóknin hefur verið birt BMJ Mental Health.

Niðurstaða þeirra var að skap okkar er ekki eins alla daga, suma daga er það mun betra en aðra daga.

Mánudagsmorgun – Margir óttast mánudaga en samkvæmt vísindunum geta mánudagsmorgnar verið gleðilegir. Mörgum finnst þeir vera ferskir og reiðubúnir til að takast á við nýja viku. Vísindamenn segja þetta vera vegna endurnýjandi áhrifa þar sem helgin veitir tækifæri til að losna við uppsafnað stress, hvílast og skipuleggja næstu daga. Mánudagur bíður því upp á tækifæri fyrir „ferska byrjun“, uppsprettu bjartsýni og endurnýjaðrar orku.

Föstudagur – Annar góður dagur er föstudagur. Þegar helgin nálgast finna sumir fyrir ákveðinni ánægju vegna eftirvæntingarinnar um frí, tómstundaiðkun eða félagslega atburði.

Um miðja vikuna er þyngra yfir – Miðvikudagar og fimmtudagar hafa tilhneigingu til að vera erfiðari dagar. Uppsöfnuð þreyta, mikill hraði og mörg persónuleg verkefni sem og vinnutengd verkefni geta sett mark sitt á skapið. Þetta er ekkert til að hafa áhyggjur af, þetta einfaldlega hinn náttúrulegi vikulegi ryþmi.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband

Svona mikla orku notar gervigreind til að búa til 5 sekúndna myndband
Pressan
Í gær

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum

Ert þú óvenjulega vingjarnleg manneskja? – Þá býrðu líklega yfir þessum eiginleikum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars

„Nýi Nostradamus“ með hrollvekjandi spádóm – Gerist nú í mars
Pressan
Fyrir 3 dögum

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu

Ítalía velti Grikklandi úr toppsætinu
Pressan
Fyrir 3 dögum

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins

Segir að kona sem sakaði Trump um brot gegn sér hafi fengið sáttagreiðslu frá dánarbúi Epsteins