fbpx
Þriðjudagur 17.mars 2026
Pressan

Trump segir að Bandaríkin muni fara með völdin í Venesúela þar til nýr leiðtogi finnst

Pressan
Laugardaginn 3. janúar 2026 16:54

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandaríkjaher mun hafa viðveru í Venesúela þar til stjórnarskipti hafa farið fram og munu tryggja að við taki stjórnvöld sem eru vinveitt Bandaríkjunum. Þetta kom fram rétt í þessu að blaðamannafundi Donalds Trump Bandaríkjaforseta sem var haldinn á heimili hans, Mar-a-Lago í Flórída.

Hann segir að hernum hafi tekist að handsama Nicolás Maduro og hann sé nú staddur á skipi bandaríkjahers sem er á leið til Bandaríkjanna. Þaðan verður Maduro flogið til New York þar sem hann hefur verið ákærður fyrir fíkniefnahryðjuverkamenn.

Trump segir að Maduro hafi verið ólögmætur einræðisherra sem hafi valdið þjóð sinni ómældum skaðað og eins staðið fyrir gífurlega umfangsmiklum innflutningi á hættulegum fíkniefnum til Bandaríkjanna sem hafi kostað þúsundir lífið.

Forsetinn segir að aðgerðirnar í morgun hafi verið engu líkar. Það hafi verið magnað að fylgjast með hernum virka eins og vel smurð vél. Enginn hermaður Bandaríkjanna hafi fallið og þeir hafi ekki einu sinni tapað hergögnum. Venesúela hafi verið í viðbragðsstöðu en allt viðnám hafi verið yfirbugað á mettíma sem sýni vel gífurlegan styrk Bandaríkjahers sem eigi engan sinn líkan. Bandaríkin hafi sýnt hvað í þeim býr og heimurinn hafi fylgst með og virði nú Bandaríkin eins og aldrei áður.

Rétt áður en blaðamannafundurinn hófst birti Trump mynd af Maduro í haldi á skipinu USS Iwo Jima.

Trump segir að Bandaríkin ætli að „stjórna“ Venesúela þar til sá tími kemur að hægt sé að koma á friðsömum stjórnarskiptum. Eins muni Bandaríkin ekki hika við að ráðast í frekari aðgerðir ef þess gerist þörf.

Forsetinn segir að olíuiðnaðurinn í Venesúela sé mislukkaður og að bandarísk olíufyrirtæki ætli að koma til bjargar til að laga innviði og gera iðnaðinn arðbærann.

Fréttin verður uppfærð

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Fyrir 2 dögum

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því

Stal AirPods – Hefði betur sleppt því
Pressan
Fyrir 2 dögum

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“

„Þetta geri ég aldrei í svefnherberginu“
Pressan
Fyrir 2 dögum

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri

Þessar plöntur elska kaffikorg – Vaxa hraðar, verða sterkari og fallegri
Pressan
Fyrir 2 dögum

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar

Draga reykingar úr stressi? – Læknir aflífar mýtur um reykingar