Flestir hafa eflaust lent í því að vera með of stóran peningaseðil, t.d. 5.000 eða 10.000 kr, meðferðis og þurfa að skipta honum en fengið neitun hjá afgreiðslumanninum í versluninni. Þá þarf stundum að grípa til þess ráðs að kaupa eitthvað smávegis í versluninni, eiginlega bara það allra ódýrasta sem til er enda er markmiðið bara að skipta seðlinum.
Marilyn Scott, 27 ára íbúi í Kilmarnock í Skotlandi, lenti einmitt í aðstæðum sem þessum. Hún þurfti að skipta 10 punda seðli til að geta greitt fyrir strætómiða. Hún fékk seðlinum ekki skipt og ákvað því að kaupa sér skafmiða til að geta síðan greitt fyrir strætómiðann. Hún setti skafmiðann í töskuna sína og gleymdi honum.
Næsta dag mundi hún síðan eftir honum og skóf af honum. Þá kom í ljós að það hafði svo sannarlega borgað sig að kaupa miðann því á honum var vinningur upp á 250.000 pund að sögn Metro. Það svarar til rúmlega 30 milljóna íslenskra króna.
Metro hefur eftir henni að hún hafi varla trúað eigin augum þegar hún sá hvað hún hafði unnið og að hún hafi orðið að fá vinnufélaga sína til að staðfesta að þetta væri rétt.