fbpx
Fimmtudagur 26.júní 2025
Pressan

Fundu lík í fjallshlíðinni – Aðeins 5 metrum frá kom annað í ljós

Pressan
Fimmtudaginn 26. júní 2025 03:15

Hér eru björgunarmenn við lík David. Mynd:Lögreglan

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þegar strandgæslan í Wales stóð fyrir æfingu í þjóðgarði í norðurhluta Wales gerði þyrluáhöfn óvænta uppgötvun. Hún fann tvö lík göngumanna á nánast sama staðnum. Þeir létust með 12 ára millibili.

En hverjar eru líkurnar á að finna þessi tvö lík svo nærri hvort öðru?

Til að skilja samhengið verðum við að fara aftur til 2012. Þá ók Shayne Colaco aleinn  í Eryri þjóðgarðinn í Wales. Hann ætlaði að ganga þar um, þar á meðal upp fjallið Pen yr Ole Wen, sem er tæplega 1.000 metrar á hæð. North Wales Live skýrir frá þessu.

En þessi 33 ára sálfræðingur sneri ekki aftur í bílinn. Mikil leit var gerð að honum en hún bar ekki árangur.

Þann 9. janúar 2024 fór David Brookfield, 65 ára, í gönguferð í þjóðgarðinum. Hann var einn á ferð og þegar hann komst á topp fjallsins Carnedd Llewelyn sendi hann eiginkonu sinni skilaboð að sögn Sky News. Þetta voru síðustu samskipti hans við umheiminn.

David Brookfield og Shayne Colaco. Mynd:Lögreglan

 

 

 

 

 

Lögreglan segir að Brookfield hafi síðan gengið á Pen yr Ole Wen. Sama fjall og Shayne Colaco gekk á 12 árum áður. Þegar Brookfield var á leið niður fjallið, datt hann líklega niður gil að mati lögreglunnar og slasaðist alvarlega. Leitin að honum var erfið því það var kalt og snjór yfir öllu.

Fjórum mánuðum síðar fann áhöfn þyrlu strandgæslunnar hann þegar hún var við æfingar í þjóðgarðinum.

Þegar lík hans fannst, fannst blár jakki, sem var ekki meðal þess fatnaðar sem Brookfields var í þegar hann hvarf.  Í vasa jakkans voru bíllyklar.

Lögreglan fann síðan lík aðeins fimm metra frá líki Brookshield. Það var grafið undir einu og öðru sem hafði hrunið niður fjallshlíðina.

Eftir langa rannsókn kom í ljós að bíllykillinn passaði í bílinn sem Shayne Colaco hafði ekið þangað 12 árum áður. Líkið hlaut því að vera af honum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Ráðgáta við strendur Mallorca – Ferðamenn fundu lík sem voru hlekkjuð á höndum og fótum

Ráðgáta við strendur Mallorca – Ferðamenn fundu lík sem voru hlekkjuð á höndum og fótum
Pressan
Fyrir 2 dögum

Harry réttir fram sáttaboð til föður síns með tveggja ára fyrirvara

Harry réttir fram sáttaboð til föður síns með tveggja ára fyrirvara
Pressan
Fyrir 2 dögum

Óhugnanlegt mál skekur Þýskaland – White Tiger í haldi

Óhugnanlegt mál skekur Þýskaland – White Tiger í haldi
Pressan
Fyrir 2 dögum

Hætti með kærustunni en fékk áfall þegar hann sá hvað beið hans nokkrum dögum síðar

Hætti með kærustunni en fékk áfall þegar hann sá hvað beið hans nokkrum dögum síðar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fordæma árás Bandaríkjanna – Vanhugsuð og ábyrgðarlaus aðgerð sem brjóti gegn alþjóðalögum

Fordæma árás Bandaríkjanna – Vanhugsuð og ábyrgðarlaus aðgerð sem brjóti gegn alþjóðalögum
Pressan
Fyrir 4 dögum

Bandarískir þingmenn forviða – Braut Trump stjórnarskrá Bandaríkjanna með árásunum á Íran?

Bandarískir þingmenn forviða – Braut Trump stjórnarskrá Bandaríkjanna með árásunum á Íran?