En hvað gerist ef maður setur sítrónu í uppþvottavélina?
Sítrónan eyðir slæmri lykt – frá matarafgöngum, fitu og þungu loftinu í vélinni.
Hún losar um sápuleifar.
Hún lætur glösin gljá enn meira og það án þess að gljái sé settur í vélina.
Í stuttu máli sagt, þá er þetta náttúrulegt efni sem hreinsar, frískar og heldur uppþvottavélinni gangandi lengur.
Svona gerir þú þetta:
Skerðu sítrónu í tvennt.
Settu annan helminginn í hnífaparabakkann eða efstu grindina.
Láttu vélina ganga eins og venjulega.
Hentu sítrónunni eftir þvottinn. Hún er búin að gera sitt gagn.
Og hér er bónusráð (alveg ókeypis á þessum góða degi!) – Láttu vélina þvo tóma nema hvað þú setur hálfa sítrónu og matarsóda í botninn. Þetta eyðir lykt og gamalli skán sem hefur sest í vélina.