Margar rannsóknir hafa verið gerðar í gegnum tíðina á eiginleikum andoxunarefna í víni og hugsanlegan heilsufarslegan ávinning af því að drekka vín. Almennt hefur verið talið að eitt til tvö vínglös á dag sé í lagi og jafnvel hollt.
En sífellt fleiri rannsóknir benda til að þetta sé ekki rétt. Fyrr á árinu sendu bandarísk heilbrigðisyfirvöld frá sér aðvörun vegna tengsla áfengisneyslu og minnst sjö krabbameinstegunda, þar á meðal brjósta-, lifrar-, ristil- og vélindakrabbameins.
Hver er niðurstaðan þegar kemur að víni? Er það hollt eða óhollt og er hollt að drekka vín daglega?
Ef vín er drukkið í hóflegu magni, getur það verið hluti af hollum lífsstíl en vínið er í sjálfu sér ekki beinlínis holl neysluvara.
Michelle Routhenstein, hjartanæringarfræðingur hjá EntirelyNourished.com, segir að áratugum saman hafi fjölmiðlar skýrt frá fullyrðingum um að það að drekka eitt vínglas á dag sé gott fyrir hjartað. „Það verður að taka þessum fullyrðingum með fyrirvara,“ segir hún að sögn Yahoo.
Hún sagði það vera rétt að vín innihaldi pólýfenól sem geti gert góða hluti í líkamanum. Hún nefndi einnig að reservatról, sem er aðallega að finna í húð rauðra vínberja, hafi verið rannsakað vegna hugsanlegs eiginleika þess við að lækka LDL-kólesteról og koma í veg fyrir blóðtappa.
Þrátt fyrir að þessi andoxunarefni geti hugsanlega unnið gegn bólgum og verndað hjarta- og æðakerfið, er vín ekki besta uppspretta þeirra.
Routhenstein sagði að magn andoxunarefna geti verið mismunandi á milli víntegunda, sérstaklega á milli hvítvíns og rauðvíns. Þess utan séu miklar líkur á að það hafi oxast og sé því síður aðgengilegt fyrir líkamann.
Kailey Proctor, klínískur næringarfræðingur við City of Hope Orange County í Kaliforníu, sagði enn sem komið er, hafi engin rannsókn verið gerð sem sýni bein tengsl á milli betra hjartaheilbrigðis og áfengisneyslu.
„Og það er mikilvægt að leggja áherslu á að allar tegundir áfengis, þar á meðal rauðvín, hvítvín, bjór og sterkt áfengi, hafa verið tengdar við auknar líkur á krabbameini,“ sagði Proctor og bætti við að þegar upp er staðið geti andoxunarefnin ekki vegið á móti þeim skaða sem áfengi veldur.