fbpx
Föstudagur 06.júní 2025
Pressan

Bono skefur ekki utan af því og segir Elon Musk bera ábyrgð á dauða 300.000 manns

Pressan
Miðvikudaginn 4. júní 2025 07:30

Musk hefur mörg mannslíf á samviskunni segir Bono.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á meðan Elon Musk var í fyrirsvari fyrir sparnaðardeildina DOGE var niðurskurðarhnífnum beitt óspart á sviðum þar sem Musk taldi óþarfa eyðslu eiga sér stað. Eitt þessara sviða er stuðningur Bandaríkjanna við þróunarríki, „USAID“, en þar nemur niðurskurðurinn 80%.

Þetta eru margir milljarðar dollara sem  hefur verið hætt að veita í stuðning til þróunarríkja og hefur það að vonum vakið mikla athygli víða um heim. Á föstudaginn var Bono, söngvari írsku rokksveitarinnar U2, gestur í hlaðvarpinu „The Joe Rogan Experince“ (sem er vinsælasta hlaðvarp heims).

„Ég held að Bandaríkin séu viðkvæmari nú en nokkru sinni áður. Það er eins og Bandaríkin hafi glatað ást sinni á umheiminum. Ég held ekki að umheimurinn vilji glata ást sinni á Bandaríkjunum,“ sagði Bono og vísaði síðan í skýrslu þar sem segir að niðurskurðurinn hjá USAID hafi nú þegar kostað 300.000 manns lífið.

Hann sagði einnig að 50.000 tonn af mat, sem átti að gefa fátækasta fólki heims, hafi verið skilin eftir og séu nú að skemmast því starfsfólkið sem hafði umsjón með þessu hafi verið rekið.

Musk var ekki sáttur við að vera sagður bera ábyrgð á dauða 300.000 manns og birti myndband af ummælum Bono og skrifaði við: „Hann er lygari/bjáni. Enginn hefur dáið.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Pressan
Í gær

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“

Segja þetta fernt útskýra hvers vegna Musk er að ráðast á „stóra fallega fjárlagafrumvarpið“ – „DREPUM FRUMVARPIÐ.“
Pressan
Í gær

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar

Umfangsmikil leit að föður sem grunaður er um að hafa myrt þrjár dætur sínar
Pressan
Í gær

Fyrrum lögregluforingi flúði úr fangelsi á ævintýralegan hátt

Fyrrum lögregluforingi flúði úr fangelsi á ævintýralegan hátt
Pressan
Í gær

Fékk nóg eftir 25 ára hjónaband – Stuttu síðar kynntist hann draumadísinni en þá hófst önnur martröð

Fékk nóg eftir 25 ára hjónaband – Stuttu síðar kynntist hann draumadísinni en þá hófst önnur martröð
Pressan
Fyrir 2 dögum

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy

Trump útilokar ekki að náða P. Diddy
Pressan
Fyrir 2 dögum

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“

Leyniþjónustustofnanir vara við „26165“
Pressan
Fyrir 3 dögum

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar

Leyniþjónustan sögð leita leiða til að fá Trump til að fylgjast betur með – Teiknimyndir, sprengingar og útsendingar í anda FOX-fréttastofunnar
Pressan
Fyrir 3 dögum

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega

Fyrsta stefnumótið endaði hræðilega