fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Matur

Trufluð andalæri á vöfflu – Þið eigið eftir að missa ykkur yfir þessum rétti

Sjöfn Þórðardóttir
Föstudaginn 3. febrúar 2023 13:15

Þennan rétt verðið þið að prófa. Hér er boðið upp á andalæri á vöfflu með hrásalati og hoisin sósu sem allir sælkerar eiga eftir að elska. MYND/MARÍA GOMEZ.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Enn og aftur fer eldhúsgyðjan María Gomez sem heldur úti síðunni Paz.is á kostum í eldhúsinu. Nú hefur hún töfrað fram þennan dýrðlega rétt sem allir sælkerar eiga eftir að missa sig yfir. Hér er á ferðinni andalæri á vöfflu með hrásalati og hoisin sósu.

„Ég keypti fyrir einhverju síðan andalæri í dós sem ég verð að viðurkenna að mér fannst fyrst hljóma mjög skrítið. ar ekki alveg að kaupa það að það gæti verið gott, en var búin að sjá þetta í verslunum víða og svo var fólk mikið að hæla þessu. Ég held ég hafi geymt dósina í 2 mánuði áður en ég fékk mig til að prófa. Ég hafði nýlega verið á veitingahúsi þar sem ég fékk andalæri á vöfflu og gat ekki hætt að hugsa um þann rétt. Ég ákvað því að gera minn eigin rétt af andalærum á vöfflu og má segja að rétturinn sé innblásinn af þremur andaréttum sem ég hef prófað með dassi af mínu hugmyndaflugi,“ segir María og er alsæl með útkomuna.

Við mælum svo sannarlega með að þið prófið þennan truflaða rétt, andalæri og vöfflur er fullkomið kombó með rétta meðlætinu.

Maríu finnst best að gera þetta í þessari röð: 1. Vöffludeig, 2. Öndin í ofninn, 3. Hrásalat meðan öndinn er í ofninum, 4. Baka vöfflurnar þegar 5 mínútur eru eftir af öndinni í ofninum.

Vöffludeig

250 g hveiti

50 g grófur hrásykur frá Dan sukker (mikilvægt að nota þennan til að gera þær stökkar)

150 g bráðið smjör

10-12 g þurrger

1 egg

½  tsk. fínt borðsalt

210 g volg mjólk

Meiri hrásykur frá Dan sukker til að sáldra yfir deigið í járninu eða jafnvel perlusykur ef þið eigið  (útskýri seinna)

Öndin

1 dós af andalærum

Salt og pipar

Tilbúin Hoisin sósa úr búð

½  dl hlynsíróp

Hrásalat

¼  partur af hvítkálshaus

3 meðalstórar gulrætur

1 gult epli

1 dl majónes en ég nota alltaf frá Heinz

1 stk. þroskað avókadó eða um 120 g

2 marin hvítlauksrif

1 msk. nýkreistur appelsínusafi

salt og pipar eftir smekk

Klettasalat til að setja svo ofan á vöffluna

Vöffludeig

Setjið öll þurrefni saman í skál og hrærið með skeið eða sleif (setja líka þurrgerið hér með).

Bætið næst við volgri mjólkinni og egginu. Hrærið vel saman með sleif og setjið svo bráðið smjörið út í og hrærið þar til það er komið vel inn í deigið, en deigið er ekki eins og hefðbundið fljótandi vöffludeig heldur meira eins og þunnt brauðdeig og þannig á það að vera. Breiðið stykki yfir skálina og setjið á volgan stað og leyfið deiginu að hefast meðan önd og hrásalat er útbúið.

Önd

Hitið ofninn á 190-200 °C undir og yfirhita án blásturs. Gott er að láta heitt vatn renna í smátíma á lokaða dósina áður en lærin eru tekin úr henni. Opnið dósina varlega og ef þið hafið látið heitt vatn renna á dósina ætti fitan að vera orðin fljótandi og þá er gott að taka lærin bara beint upp úr og setja í eldfast mót, ef fitan er enn þykk og óbráðin þá skola ég ögn lærin undir volgu vatni til að ná sem mest af fitunni af þeim áður en ég set þau í mótið. Saltið og piprið létt og penslið létt með Hoisin sósu. Bakið í ofninum í 25-30 mínútur en lærin er fullelduð fyrir svo hér er í raun bara verið að hita þau upp og ná fram stökkri húð, gott er að hafa þau á grilli síðustu 2-3 mínúturnar.

Hrásalat

Setjið avókadó, majónes og appelsínusafa ásamt hvítlauksrifjum saman í blandara og maukið þar til verður að kekkjalausri silkimjúkri sósu. Skerið hvítkálið í örþunnar ræmur, mér finnst best að skera það með hníf en það má líka rífa það í rifjárni. Flysjið gulrætur og skrælið eplið og skerið bæði gulrætur og epli í þunnar lengjur með flysjara. Setjið næst majónessósuna í skál og grænmetið ásamt eplinu út í og hrærið vel saman og saltið ögn og piprið,  kælið meðan andalærin eru í ofninum.

Samsetning

Þegar fimm mínútur eru eftir af lærunum í ofnum bakið þá  vöfflurnar í belgísku vöfflujárni (stráið smá perlusykri eða hrásykri yfir hverja vöfflu áður en þið lokið járninu) og passið að baka þær nógu lengi svo þær verði stökkar og setjið á grind. Hrærið 1,5 dl af Hoisinsósu saman við 0,5 dl af hlynsírópi, hrærið vel saman og hitið í örbylgjuofni í 30-40 sekúndur. Rífið andalærin niður með gaffli. Setjið svo á heita vöffluna hrásalat neðst, andalæri ofan á og dreifið svo heitri Hoisin/hlynsíróp sósunni yfir lærin og toppið með klettasalati.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa