fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Matur

Þjófstörtum bolludeginum og fáum okkur litlar krúttlegar vatnsdeigsbollur með pippfyllingu

Sjöfn Þórðardóttir
Þriðjudaginn 7. febrúar 2023 09:47

Berglind Hreiðars er búin að þjófstarta bolludeginum og býður hér lesendum að njóta góðs af og prófa þessa dásamlegu uppskrift af krúttlegum og litlum vatnsdeigsbollum með pippfyllingu. MYNDIR/BERGLIND HREIÐARS.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Er ekki kominn tími til að þjófstarta bolludeginum og fá sér gómsætar bollur og lífga upp á tilveruna? Berglind Hreiðars köku- og matarbloggari með meiru sem heldur úti bloggsíðunni Gotterí og gersemar er að sjálfsögðu búin að þjófstarta bolludeginum og hefur hér svipt hulunni af sínum bollum í ár. Það kemur engum á óvart að það er nýjasti Royal búðingurinn á markaðinum sem fær að njóta góðs af inni í þessum dásemdum.

Hér er um að ræða Royal búðinginn með Pipp bragði og hann sló ó gegn hjá Berglindi. „Ef hann er ekki fullkominn inn í vatnsdeigsbollur þá veit ég ekki hvað. Þessar fóru beinustu leið í kaffiboð hjá frænku minni og þar voru allir sammála um að þær væru algjörlega dásamlegar. Þær fá því 10 í einkunn og verða án efa endurteknar fyrir bolludaginn, segir Berglind og hlær.

Berglind gerðu svona litlar og krúttlegar bollur sem eru bara einn til tveir munnbitar, sem er fullkomið fyrir okkur sem viljum taka smakk.

Mini vatnsdeigsbollur með pippfyllingu

Um 30 stykki

Vatnsdeigsbollur

150 g hveiti

1 tsk. lyftiduft

¼ tsk. salt

140 g smjör

270 ml vatn

3 egg (130 g)

Byrjið á því að hita ofninn í 180°C. Hrærið saman hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og geymið. Hitið saman vatn og smjör í potti þar til smjörið er bráðið og blandan vel heit. Leyfið að búbbla aðeins og takið síðan af hellunni. Hellið hveitiblöndunni saman við smjörblönduna og hrærið/vefjið saman við með sleikju þar til allir kekkir eru horfnir og blandan losnar auðveldlega frá köntum pottsins. Flytjið blönduna yfir í hrærivélarskálina og hrærið á lægsta hraða með K-inu og leyfið hitanum þannig að rjúka aðeins úr blöndunni á meðan þið pískið eggin. Setjið eggjablönduna næst saman við í litlum skömmtum og skafið niður á milli. Athugið að nota aðeins 130 g af eggjunum. Egg eru misstór og því gott að vigta þetta til þess að deigið verði ekki of þunnt. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og hver bolla má vera um ein teskeið. Bakið í 25-27 mínútur, bollurnar eiga að vera orðnar vel gylltar og botninn líka, ekki opna þó ofninn fyrr en eftir 25 mínútur til að kíkja undir eina. Helstu mistök sem fólk gerir er að baka bollurnar ekki nógu lengi og þá falla þær.

Pippfylling

1 pk. Royal búðingur með pipp bragði

250 ml nýmjólk

300 ml léttþeyttur rjómi

80 g Pralín súkkulaði með piparmyntufyllingu frá Nóa Siríus

Pískið búðingsduftið saman við mjólkina, setjið í kæli í um 10 mínútur og pískið reglulega í blöndunni á meðan.Vefjið léttþeytta rjómanum næst saman við búðinginn með sleikju.

Saxið Pralín súkkulaðið smátt niður og vefjið varlega með sleikju saman við rjómablönduna.

Skiptið niður á bollurnar og toppið með súkkulaðiglassúr (sjá uppskrift að neðan).

Súkkulaðiglassúr

100 g brætt smjör

200 g flórsykur

3 msk. bökunarkakó

3 tsk. vanilludropar

3 msk. vatn

Pískið allt saman í skál og smyrjið yfir bollurnar.

Berið svo fram á fallegum disk eða bretti og svo er svo gaman að skreyta aðeins kringum bollurnar og fanga augað og loks munn.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Stöð 2 lækkar verð
Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa