fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Matur

Svívirðilega gott mið-austurlenskt sælgæti sem þú verður að prófa

Sjöfn Þórðardóttir
Þriðjudaginn 23. ágúst 2022 20:37

Þessar dásamlegu Brownies með halva eru svívirðilega góðar og eru nýjustu æðibitarnir hennar Maríu Gomez. MYNDIR/MARÍA GOMEZ.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

María Gomez lífsstíls- og matarbloggari er mikill sælkera og elskar að smakka nýja kræsingar, sérstaklega á erlendum kaffihúsum. Hún hreinlegar leitar upp nýjungar sem hún hefur aldrei bragðað og finnst slíkar smakkferðir skemmtilegastar. Nýjustu æðibitarnir hennar eru Brownies með Halva, sem henni fannst svo góðir að hún ákvað að leika þá eftir heima í eldhúsinu sínu.

„Þar sem ég er nú búin að koma á hina ýmsu staði í Ameríku í sumar hef ég prófað að smakka ýmislegt þar úti. Ég fékk svona svipaðar Brownies á dásamlegu kaffihúsi í Washington sem heitir Tatte. Þið getið kíkt á það hér.“

„Ég verð að segja að ég vissi ekkert hvað ég var að kaupa þegar ég fékk mér Brownie með Halva, en Halva er eitthvað sem ég hafði aldrei heyrt um. Það er akkúrat það sem ég leitast eftir þegar ég fer til nýrra staða, eitthvað sem ég hef aldrei prófað. Halva er mið-austurlenskt sælgæti sem er gert úr tahíni, eða sesammauk. Halva gefur kökunum dásamlegan sætan hnetukeim,“ segir María dreymin á svip.

Aðspurð segir María að hún myndi samt segja að þessar Brownies séu meira svona fullorðins en ekki fyrir krakka, dásamlegar með kaffibollanum og ótrúlega auðveldar að gera. Hún mælir með að skera sneiðarnar frekar smáar, svona millistærð af konfektmola og brownie sneið og geyma svo í frysti. Hægt er að fylgjast með blogginu hennar Maríu á bloggsíðunni hennar Paz.is. 

Halva Brownies

Brownie deig

220 g smjör

375 g sykur

120 g bökunarkakó

1 tsk. fínt borðsalt

2 tsk. vanilludropar

3 köld egg

95 g hveiti

Halva krem

200 g tahini ljóst

180 g sykur

½ bolli vatn eða 120 g

Aðferð:

Brownie deig

Skerið smjörið niður í teninga og setjið í skál, ásamt sykrinum, kakóinu og saltinu. Setjið svo skálina yfir vatnsbað (Þá er vatn sett í botninn á potti og látið hitna og skálin svo sett ofan á pottinn án þess að hún snerti vatnið en vatnið þarf að vera heitt allan tímann). Látið skálina vera yfir vatnsbaði og hrærið reglulega í með sleikju þar til allt hefur bráðnað saman í skálinni og orðið að fallega glansandi súkkulaði mauki. Takið þá skálina af pottinum og kælið í 5 mínútur. Setjið næst vanilludropa út í skálina og svo eitt egg í einu og hrærið hverju eggi vel inn í deigið, einu í einu með sleikju eða sleif, þar til allt er glansandi fínt og vel blandað saman. Bætið svo hveitinu út í og hrærið áfram saman með sleikju í eins og 40-50 hringi en hér er í lagi að ofhræra svo kökurnar fái á sig seiga áferð eins og við viljum hafa brownies. Setjið næst álpappír ofan í mót sem er um það 20×30 sentimetrar (ég fékk mitt í Ikea eins og þetta hér). Látið álpappírinn standa upp á sitthvorn endanum svo hægt sé að taka kökuna upp úr mótinu með álpappírnum. Hellið deiginu út í mótið án þess að smyrja álpappírinn. Bakið svo á 165°C  blæstri á í 20-25 mínútur en ég bakaði mínar í akkúrat 23 mínútur. Gott er að stinga hníf í miðja kökuna og ef það kemur eins og mylsna á hnífinn en ekki blautt deig þá er hún til. Takið þá kökuna upp úr mótinu með því að taka í álpappírinn sem stendur upp úr og leggið á kæligrind eða skurðarbretti og látið hana kólna. Gerið Halva kremið á meðan hún kólnar.

Halva krem

Setjið sykurinn og vatnið saman í kaldann pott og hrærið vel saman. Setjið næst pottinn á eldavélarhellu stillta á hæsta hita og látið suðuna koma upp þar til bullsýður. Ekki hræra neitt í sykurvatninu heldur leyfið því að bullsjóða á hæsta hita, eða háum hita í sléttar 11 mínútur án þess að hræra. Verið búin að velgja upp tahíni í stærri potti en það á að verða bara svona mjúkt og fljótandi og hægt að snerta pottinn á hliðunum án þess að brenna sig (passa að hitinn fari ekki yfir 50 °C þá verður tahínið rammt á bragðið). Þegar sykurvatnið hefur soðið í akkúrat 11 mínútur,  hellið því þá yfir í pottinn með tahínínu í og byrjið strax að hræra hratt þar til er orðið eins og þykk sósa. Ekki hræra of mikið heldur bara þar til rétt þykknar, annars verður það þurrt og molnar. Hellið kreminu svo yfir kökuna og látið kólna í kæli eða við glugga þar til kremið er orðið þykkt og aðeins búið að stífna. Síðan er bara að njóta hvers bita, það er þess virði.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Hartman í Val
Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa