fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Matur

Nýkrýndir sigurvegara fyrir Eftirrétt ársins og Konfektmola ársins 2022

Sjöfn Þórðardóttir
Föstudaginn 11. nóvember 2022 10:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Mikið var um dýrðir í Laugardalshöllinni í gær á sýningunni Stóreldhús 2022. Á sýningunni stóð fyrirtækið Garri fyrir keppninni Eftirréttur ársins og Konfektmoli ársins. Garri hefur haldið eftirrétta keppnina frá árinu 2010 og konfektmolann frá árinu 2017. Garri heldur keppnina í samstarfi við Cacao Barry sem leitast stöðugt við að þjóna matreiðslufólki með því að bjóða hágæða súkkulaði og efla sköpunargáfu matreiðslumanna. 100% af Cacao Barry kakóbaunum styður við sjálfbæra uppskeru.

Þema keppninnar í ár var Ávaxtarík upplifun og voru skylduhráefnin ákveðin áskorun fyrir keppendur sem sýndu mikla fagmennsku og metnað.  Dæmt var meðal annars eftir samsetningu hráefna, bragði, áferð og frumleika. Jafnframt var dæmt eftir framsetningu og faglegum vinnubrögðum.

Fjölmargir voru skráðir til leiks og leiku listir sínar við að töfra fram girnilega og fallega eftirrétti sem slógu í gegn.

Sigurvegari í Eftirréttur ársins 2022 er Ísak Aron Jóhannsson, hjá Lux Veitingum, í öðru sæti var Dagur Hrafn Rúnarsson, aðstoðarmaður í Bocuse d‘Or og í þriðja sæti var Guðgeir Ingi Kanneworff Steindórsson hjá veitingastaðnum Óx.

Hér má sjá Eftirrétt ársins 2022, svo falleg samsetning þar sem ávaxtaupplifunin er í forgrunni.Gaman er að geta þess að Ísak Aron sem sigraði Eftirréttur ársins í dag á leið á World Culinary Cup með íslenska kokkalandsliðinu síðar í mánuðinum og það verður spennandi að fylgjast með þeim þar töfrar fram kræsingar.

Sigurvegari í Konfektmola ársins er Bianca Tiantian Zhang, hjá Sandholt bakarí, í öðru sæti var Aðalheiður Reynisdóttir hjá Reykjavík Edition og í þriðja sæti var Filip Jan Jozefik hjá veitingastaðnum Mika.

Hér má sjá hina gómsætu og falllegu konfektmola ársins 2022 sem Biacana töfraði fram á sinn einstaka hátt.

Sigurvegari í Eftirréttur ársins og í Konfektmola ársins fengu í verðlaun námskeið hjá Chocolate Academy Cacao Barry.

Dómarar í Eftirréttur ársins

Ólöf Ólafsdóttir. Fyrsta sæti í Eftirréttur Ársins árið 2021 og Head pastry chef Monkeys.

Sebastian Pettersson, Executive pastry chef hjá Tak í miðborg Stokkhólms og liðsstjóri sænska ungliða kokkalandsliðs. .

Sigurjón Bragi Geirsson, Bocusd d’Or keppandi 2021-2023, kokkur ársins 2019 og þjálfari íslenska kokkalandsliðsins árið 2020.

Dómarar í Konfektmoli Ársins

Karl Viggó Vigfússon eigandi Héðinn Kitchen & Bar og stofnandi Blackbox, Omnom og Skúbb.

Vigdís Mi Diem Vo. Fyrsta sæti í Konfektmoli ársins 2021, 2.sæti í Konfektmoli ársins 2020, 3. sæti í Konfektmoli ársins 2019, 3.sæti í Eftirréttur ársins árið 2013. Eigandi Kjarr Restaurant.

Fjölmargir hæfileikaríkir einstaklingar skráðu sig til leiks og tóku þátt enda var mikið um dýrðir meðan kræsingarnar voru töfraðar fram í Höllinni.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Matur
20.12.2023

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi

Grillaður hunangshjúpaður hestshaus með sinnepsfræjum, villihvítlauk og blóðbergi
Matur
07.12.2023

Hátíðarbakkinn

Hátíðarbakkinn
Matur
04.11.2023

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu

Djúsí beikonborgari með mozzarella fyllingu
Matur
03.11.2023

Kjúklingalasagna sem allir elska

Kjúklingalasagna sem allir elska
Matur
20.10.2023

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk

Salat með byggi, sætum kartöflum, graskersfræjum og hvítlauk
Matur
19.10.2023

Bragðmikil sveppasúpa

Bragðmikil sveppasúpa