Sunneva Einars áhrifavaldur hefur mikinn áhuga á hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl. Hún ákvað að deila hugmyndum að millimáli með fylgjendum sínum í Instagram Story.
„Vonandi getið þið notað þetta,“ sagði Sunneva Einars við fylgjendur sína á Instagram í gær. Hún deildi síðan mörgum hugmyndum að millimáli.
Meðal hugmynda voru: Epli og möndlusmjör, poppkex með hnetusmjöri, gulrætur og hummus, próteinsjeik, frosin vínber, og smá hafrar með kanil og soyamjólk.