fbpx
Mánudagur 29.apríl 2024
Kynning

Fann ótrúlegan mun með Benecta – Algerlega verkjalaus

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Laugardaginn 2. mars 2019 10:00

Sandra Hrönn Arnardóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Benecta er ein af framsæknustu nýjungunum í náttúrulegum fæðubótarefnum á Íslandi í dag. Benecta er framleitt á Siglufirði og er afrakstur meira en tíu ára rannsóknar- og þróunarvinnu á kítófásykrum, notkun þeirra og ávinningi.

Benecta

Hvað eru kítófásykrur?

Virka efnið kítófáskyrur er framleitt unnið úr rækjuskel. Kítófásykrur frásogast út í blóðið og þar með fara lífvirku efnin út í blóðrásina og styðja náttúrulega ferla líkamans við að vinna úr afleiðingum líkamlegs álags. Þeir sem hafa neytt Benecta hafa vitnað um það að efnið dragi meðal annars úr verkjum, bólgu og auki starfsorku.


Sandra Hrönn Arnardóttir, keppandi í crossfit, er ein þeirra sem hafa nú tekið inn Benecta í nokkur ár og hefur sína sögu að segja um jákvæð áhrif Benecta.

Benecta
Sandra Hrönn Arnardóttir, afreksmanneskja í íþróttum.


Fór að taka Benecta vegna axlameiðsla

„Þar sem talið er að Benecta eigi að vinna úr afleiðingum líkamlegs álags og auka í leiðinni úthald, þá ákvað ég í kringum lok ársins 2015, byrjun 2016, að prófa að taka inn Benecta. Ástæðan var sú að á þessum tíma var ég búin að vera mjög óheppin með axlameiðsl. Ég hafði tognað á báðum öxlum, en þó með einhverju millibili.“

Verkirnir minnkuðu strax

„Ég var og er ennþá reglulega hjá sjúkraþjálfara sem hefur hjálpað mér mjög mikið. Þegar ég fór svo að taka Benecta, fann ég eftir stuttan tíma hvað verkirnir fóru að minnka smám saman og ég var farin að geta gert allar æfingar án verkja í öxlunum. Það sem meira var þá hætti ég að finna fyrir beinhimnubólgu þegar ég var að hlaupa. Ég var mjög gjörn á að verkja mikið í sköflungana eftir hlaup, en núna eru þessir verkir alveg farnir. Það hefur komið fyrir að ég hef ekki tekið Benecta í einhvern tíma en þá fæ ég heldur betur að finna fyrir því. Ég tek Benecta núna á hverjum degi og æfi af krafti verkjalaus.“

Í 4. sæti í Suður-Afríku

Sandra er nýkomin heim úr keppnisferðalagi í Suður-Afríku þar sem hún keppti ásamt liðsfélögum sínum í Crossfit XY. „Við vorum fjögur saman í liði, þ.e.a.s. tvær stelpur og tveir strákar. Þetta var mjög skemmtileg og krefjandi keppni. Við gáfum allt í þetta og enduðum í 4. sæti af um 80 liðum sem voru þarna að keppa. Það er óhætt að segja að það að keppa í um 25°C er ákveðin áskorun út af fyrir sig þar sem maður er vanur að æfa hér á Íslandi í örlítið kaldara lofti. En við tókum þetta og erum mjög sátt við árangurinn,“ segir Sandra stolt.

Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðunni benecta.is
Benecta fæst í öllum helstu lyfjavöruverslunum og heilsubúðum um land allt.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum