fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Áferð íslenskrar náttúru. Aurum skartgripir eru umhverfisvænir og fallegir

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Föstudaginn 21. júní 2019 11:00

Mynd: Eyþór Árnason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í Bankastræti 4 býr sannkallaður eðalsteinn, en þar er til húsa skartgripaverslunin Aurum. Guðbjörg Kristín Ingvarsdóttir er hönnuður þessara fallegu skartgripalína, sem sækir innblástur sinn til íslenskrar náttúru. Verslunina Aurum eiga þau Guðbjörg og Karl Jóhann Jóannsson saman.

Aurum um allan heim

Skartið frá Aurum hefur vakið heimsathygli, og hlotið lofsamlega dóma hjá ferðavísum á borð við Condé Nast Traveler, Lonely Planet og tískutímaritunum Elle og Vouge. Þá má fylgjast með framgangi Aurum í tískuheiminum á sérstöku bloggi á heimasíðu verslunarinnar.

Allir gripir Aurum eru handsmíðaðir á Íslandi, en um 50 sölustaðir víða um heim hafa á boðstólum skart frá fyrirtækinu. Meðal þeirra landa þar sem hægt er að nálgast vörur frá Aurum eru Bretland, Bandaríkin, Ástralía og Kína auk Norðurlandanna, en lista yfir söluaðila má finna á aurum.is. Þar er að auki rekin vönduð vefverslun sem sendir vörur um allan heim í vönduðum umhverfisvænum gjafaumbúðum.

Alúð, Umhyggja, Raunsæi, Umhyggja og Metnaður

Aurum er latneska orðið yfir gull. Gildi fyrirtækisins, Ambition, Understanding, Responsibility, Unity and Mindfulness mynda síðan orðið með upphafsstöfum sínum. Á íslensku gætu þau útlagst sem Alúð, Umhyggja, Raunsæi, Umhyggja og Metnaður. Þessi gildi hafa verið leiðarljós hönnuðarins, Guðbjargar, frá upphafi, en hún stofnaði fyrirtækið árið 1999.

Guðbjörg segir starf Aurum einkennast af markvissri vöruþróun með áherslu á umhverfisvernd. Einungis endurunnir góðmálmar eru notaðir í skartgripina frá Aurum auk vottaðra eðalsteina. Þá hefur Guðbjörg gert tilraunir með náttúruleg efni sem annars færu í glatkistuna, og meðal annars unnið með hreindýraklaufir í hönnun sinni.

Þá eru allar gjafaumbúðir fyrirtækisins unnar úr blöðum mórberjatrjáa, sem ekki þarf að fella til pappírsvinnslu.

Áferð íslenskrar náttúru

Hönnun skartgripanna hjá Aurum hefur frá upphafi sótt innblástur til íslenskrar náttúru. Guðbjörg segir að með árunum hafi hún fengið meiri áhuga á áferð málmanna, og þess sjáist merki í skartinu. Hver ný lína sé einstök og löng hönnunarvinna liggur að baki.

Nýjasta línan, RÁN, en innblásin af norrænu sjávargyðjunni og einkennist af mjúkum formum, hvössum línum, ljósi og skuggum. Þá býður Aurum uppá einstaklega fallega brúðkaupslínu, auk mikils úrvals af alhliða handgerðum skartgripum, þar sem allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

 

Aurum by Guðbjörg
www.aurum.is

Bankastræti 4, 101 Reykjavík.

Sími: 551-2770

Netfang: info@aurum.is eða á facebookmessenger.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum