fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Krakkaklúbburinn Krummi: Listaverkin koma á óvart og við erum alltaf að uppgötva eitthvað nýtt!

Kynning
Jóhanna María Einarsdóttir
Þriðjudaginn 23. apríl 2019 09:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Krakkaklúbburinn Krummi hóf göngu sína á Listasafni Íslands haustið 2018. Krakkaklúbburinn stendur fyrir fjölbreyttri dagskrá í hverjum mánuði þar sem börnum og fjölskyldum er boðið að fræðast um listaverkin í safneign Listasafns Íslands, skapa list og leika sér í nærandi umhverfi. Starfið er fyrir börn á öllum aldri og er þátttakendum að kostnaðarlausu. Markmiðið er meðal annars að fólk gangi að fjölbreyttri og vandaðri starfsemi fyrir börn og fjölskyldur þeirra í Listasafni Íslands.

Metnaðarfull dagskrá
Tenging við sýningar og starfsemi safnsins er ávallt höfð að leiðarljósi við dagskrárgerð Krakkaklúbbsins Krumma. Dagskráin er metnaðarfull og við leggjum mikið upp úr fjölbreytileika og viðburðum þar sem allir geta tekið þátt, börn og fullorðnir. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa og Krakkaklúbburinn Krummi fer sífellt stækkandi. „Við höfum fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir vönduðu barnastarfi á safninu okkar. Dagskráin er gefin út nokkra mánuði fram í tímann þannig að fjölskyldur geti skipulagt tíma sinn með góðum fyrirvara. Viðburðirnir eru endurteknir tvisvar í mánuði þannig að sem flestir geti notið góðs af,“ segir Ragnheiður Vignisdóttir, verkefnastjóri viðburða og fræðslu og sér hún einnig um Krakkaklúbbinn.

„Tvisvar sinnum í mánuði fyllist Listasafn Íslands af lífi þar sem börnin koma með foreldrum sínum, systkinum, ömmum og öfum í heimsókn og njóta samverunnar við hvert annað og skemmtilega starfsins sem hér er skipulagt í Krakkaklúbbnum Krumma. Listaverkin koma nefnilega á óvart og við erum alltaf að uppgötva eitthvað nýtt!“

Silkiþrykksmiðja

Dæmi um viðburði sem Krakkaklúbburinn hefur staðið fyrir síðasta árið eru tónleikar, grafíksmiðjur, ritsmiðjur, fræðsla um miðaldahandrit, jólakortagerð, galdrasýning, landakortasmiðja, teiknismiðja með teiknikennurum og núna í apríl er silkiþrykksmiðja á dagskrá í tengslum við sýninguna Fjársjóður þjóðar. Hægt verður að koma með bol að heiman til að fá prentaða mynd á eða fá pappír á safninu og skapa sitt eigið silkiþrykk.

Næsta silkiþrykksmiðja verður á dagskrá laugardaginn 27. apríl kl. 14–16 í Listasafni Íslands.

 

Nánari upplýsingar um viðburði safnsins má nálgast á listasafn.is

Listasafn Íslands er staðsett að Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík.

Sími: 515-9600

Fylgstu með á Facebook: Listasafn Íslands og Instagram: Listasafn Íslands

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum