BS Verktakar hafa árum saman sérhæft sig í bílastæðamálun, vélsópun, malbikun, malbiksviðgerðum og ýmsu viðhaldi umhverfis fjölbýlishús, fyrirtæki og stofnanir, þar á meðal viðhaldi bílastæða. Fyrirtækið býr yfir öflugum tækjakosti á þessum sviðum ásamt mikilli reynslu og verkþekkingu sem tryggja vönduð vinnubrögð í hvívetna. BS Verktakar eru fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem býður heildarlausn á viðhaldi bílastæða.
Í meira en þrjá áratugi hafa BS Verktakar boðið fyrirtækjum, bæjarfélögum, húsfélögum og fleiri aðilum upp á málun bílastæða og aðrar skyldar merkingar, t.d. stæði fatlaðra, örvamerkingar, gangbrautarmerkingar og bannsvæðamerkingar o.fl. Fyrirtækið býr yfir fullkomnum tækjakosti fyrir þessi verkefni sem ásamt hárréttum efnum tryggja hámarks endingu merkinganna.
Þess má geta að mjög stuttur afgreiðslutími er á öllum bílastæðaskiltum en þau er hægt að velja í netverslun Verktaks á verktak.is. Allar uppsetningarlausnir eru í boði.
Malbiksskemmdir breiða fljótt úr sér og við það eykst viðgerðarkostnaður. Þess vegna er afar mikilvægt að gert sé við hið fyrsta ef malbikið er farið að skemmast. Göt og holur í malbiki geta einnig valdið tjóni á bílum. Þess vegna er mikilvægt að gera við skemmdir í malbiki áður en stærri holur myndast. BS Verktakar bjóða upp á alhliða malbiksviðgerðir, malbikssögun og lagningu nýs malbiks.
BS Verktakar hafa jafnframt tekið í notkun búnað til viðgerða með geislahitun en í sumum tilfellum er sú tækni jafnvel betri en sú hefðbundna. Fulltrúi fyrirtækisins ráðleggur verkkaupa um rétt val á aðferð hverju sinni.
Hægt er að óska eftir tilboðum án skuldbindinga og endurgjaldslaust í símum 551-4000, 690-800, í gegnum netfangið verktak@verktak.is eða á verktak.is/fyrirspurn
BS Verktakar bjóða vélsópun á bílaplönum. Boðið er upp á háþrýstiþvott fyrir bílaplön en það er oft nauðsynlegt, sérstaklega þegar plön hafa verið sandborin að vetri.
BS Verktakar sérhæfa sig jafnframt í þrifum og viðhaldi á aðkomusvæðum fyrirtækja og fjölbýlishúsa, t.d. tyggjóhreinsun, veggjakrotshreinsun, þvotti á fasteignum, gluggum og bílageymslum; fjarlægja einnig bílastæðamerkingar og drasl af lóðum.
Í boði eru þjónustusamningar og reglulegt viðhald þar sem hentar.
Ýmiss konar önnur þjónusta er í boði, t.d. kantsteinaviðgerðir og önnur vinna í tengslum við kantsteina, sem og ýmiss konar jarðvinna og garðvinna. Nánari upplýsingar eru á heimasíðu fyrirtækisins, verktak.is.
BS Verktakar eru til húsa að Suðurlandsbraut 32, Reykjavík. Símanúmer er 551-4000 og netfang er verktak@verktak.is.Óskum um tilboð án skuldbindinga er hægt að koma á framfæri þar eða á http://verktak.is/fyrirspurn/