fbpx
Mánudagur 20.maí 2024
Kynning

Brúin Grindavík: Ljúffengur matur og stórkostlegt útsýni

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Þriðjudaginn 29. maí 2018 14:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brúin er veitingastaður í Grindavík þar sem saman fer ljúffengur matur, heimilislegt andrúmsloft og stórfenglegt útsýni yfir höfnina í Grindavík.

„Ég byggði Brúna árið 2012,“ segir Ólafur Arnberg Þórðarson, eigandi Hótel Grindavíkur ehf. sem rekur Brúna, ásamt eiginkonu sinni, Ingu Sigríði Gunndórsdóttir. Áttu þau neðri hæðina og byggðu veitingastaðinn ofan á. Á neðri hæðinni er núna verið að innrétta hótelherbergi. „Þetta er flottasta lóðin hér í 101 Grindavík, en byrjað verður á að opna fimm herbergi.“

„Lengi býr að fyrstu gerð, ég var messagutti á Gullfossi undir handleiðslu Ólafs Laufdals og ef maður getur bara lært 5% af því sem hann kann þá er maður góður,“ segir Ólafur Arnberg aðspurður um af hverju hann ákvað að opna veitingastað. Brúin var opnuð á Sjómannadaginn árið 2013 og fagnar fimm ára afmæli fyrsta sunnudaginn núna í júní.

Fiskur er í fyrirrúmi á matseðlinum en á honum eru um 20 réttir og meirihlutinn fiskréttir, en fiskurinn kemur að sjálfsögðu frá Grindavík. „Við erum með þorsk, rauðsprettu, silung og lax, fiskborgara og fiskibollur,“ segir Ólafur Arnberg. Fyrir þá sem kjósa ekki fiskinn er lambakjöt, kótilettur, snitsel, steikarsamlokur, hamborgarar, vegansnitsel og grænmetisbuff í boði.


Girnilegur humar með frönskum, salati og hvítlauksbrauði.

Einnig er boðið upp á heimabakaðar kökur, kaffi og frítt net. Tveir sjónvarpsskjáir eru á staðnum og því hægt að horfa á boltann og aðra viðburði.

Hægt er að halda einkasamkvæmi á Brúnni, fermingar, brúðkaup og aðrar veislur. Ólafur Arnberg og hans fólk sjá þá um veitingar, undirbúning og vinnu í veislunni.

Brúin er að Hafnargötu 26 í Grindavík, síminn er 426-7080 og netfangið er bruin@simnet.is.
Opið er alla daga frá kl. 12-20.
Heimasíðan er: restaurantbruin.com.


Fiskisúpa skipstjórans.


Ofnbakaður silungur með sætri kartöflumús, kartöflum og salati.


Kjötsúpa ásamt brauði.


Kjúklingasalat.


Fiskur og franskar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
Kynning
16.06.2023

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt
Kynning
04.05.2023

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS