fbpx
Föstudagur 17.maí 2024
Kynning

T – Bone: Kolagrillaðar steikur í aðalhlutverki

Kynning
Ragna Gestsdóttir
Sunnudaginn 27. maí 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

T-Bone steikhús er metnaðarfullur veitingastaður við Ráðhústorgið í hjarta Akureyrar. Þar eru allar steikur grillaðar á kolagrilli sem gefur einstakt bragð. Á matseðlinum eru margar tegundir af steikum í boði; mismunandi vöðvar og þyngd. Reynt er að hafa eitthvað fyrir alla – þótt steikurnar séu í aðalhlutverki. Sem dæmi um steikur má nefna nautalundir, bæði 200 gramma og 300 gramma, rib-eye 350 gramma, lambalundir og BBQ grísarif, að ógleymdri 800 gramma Porterhouse-steikinni sem er frábær!

Vinsælasta steikin er klárlega t-bone steikin (400 g) en það er lund og fillet á beini. Þetta er flott og bragðmikil steik sem best er að steikja medium rare. Meðlætið er hefðbundið, til dæmis bökuð kartafla með kryddsmjöri, grillaður maísstöngull, hvítlauksristaðir sveppir og fleira góðgæti.

Mælum með ,,Uppáhaldi grillarans”

T-Bone steikhús býður upp á hádegis- og kvöldmatseðil. Hádegisseðillinn er aðeins léttari og á kvöldin er seðillinn fjölbreyttari og þá er hægt að velja svokallað „Uppáhald grillarans“ sem matreiðslumenn staðarins hafa sett saman. Einnig geta viðskiptavinirnir valið steik, meðlæti og sósu að eigin ósk.

T-Bone steikhús leggur áherslu á að veita persónulega þjónustu, vera með gott verð og besta mögulega hráefni í þægilegu og flottu umhverfi.

Verið velkomin á T-Bone steikhús, hlökkum til að sjá ykkur!

T-Bone steikhús
Brekkugötu 3, 600 Akureyri
Sími 469-4020
Heimasíða: tbone.is og Facebook: tbonesteikhus.

 

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
23.01.2024

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea

Tífalt meira magn af „bótoxi jurtaríkisins“ í nýju serumi frá Nivea
Kynning
28.12.2023

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr

Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 243.500kr
Kynning
16.06.2023

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt

Þúsundir Mosfellinga hafa nýtt sér aðstöðuna hjá Eldingu Líkamsrækt
Kynning
04.05.2023

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS

Frábær tilboð í tilefni af afmæli BAUHAUS