fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
Kynning

Allir geta lært að syngja – Gjafabréf í söngtíma er frábær jólagjöf

Kynning
Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 8. desember 2018 10:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Þegar fólk kemst að því hvert starf mitt er segir það oft: „Vá! Mig hefur alltaf dreymt um að læra að syngja.“ Marga dreymir um það en láta samt ekki verða af því. Oft hefur fólk líklega á tilfinningunni að það sé nauðsynlegt að kunna að syngja áður komið er í söngtíma. En það er ekki þannig. Ég held að flestir hafi gaman af því að syngja en fólk hefur oft fyrirframgefnar hugmyndir um sönghæfileika sína og drífur sig því ekki af stað. Foreldrar hafa jafnvel haft samband við mig eftir fyrsta söngtíma barnsins og spurt: „Getur hún/hann eitthvað?“ Mér finnst þetta viðhorf ekki gefa barninu séns og ég held að fullorðnir gefi sér ekki alltaf séns til að læra og njóta þess að syngja. Auðvitað höfum við fengið misjafnlega mikla hæfileika í vöggugjöf og þurfum að hafa mismikið fyrir hlutunum – engu að síður geta allir lært að syngja, við getum öll bætt okkur.“

Þetta segir Elísabet Ólafsdóttir, eða Lísa, sem rekur söngskólann Vocal-Lisa, að Hverafold 1–5, í Grafarvogi. Elísabet er söngkona og söngkennari með mikla reynslu og menntun að baki en einnig hefur hún BA-próf í sálfræði. Hluti af aðferðum hennar er að virkja sjálfstraust nemenda og fá þá til að þora að leyfa röddinni sinni að njóta sín.

„Ég fæ aldrei eins mikla gæsahúð og þegar nemendur sem eiga erfitt með að hitta á réttu tónana fara skyndilega að gera einmitt það – fátt er meira gefandi,“ segir Lísa, en kennsluaðferðir hennar byggja á aðferðinni Complete Vocal Technique – CVT. Sú aðferð byggir á þeirri grunnforsendu að allir geti lært að syngja en einnig er mikil áhersla lögð á að röddinni sé beitt á heilbrigðan hátt.“

Complete Vocal Technique er söngtækni sem þróuð hefur verið í Danmörku af Cathrine Sadolin og er byggð á yfir 30 ára rannsóknarvinnu hennar á öllum söngstílum. Í rannsóknateymi Sadolin er háls, nef- og eyrnalæknir ásamt reyndum söngvurum og kennurum.

Við erum feimin við að syngja hátt

„Við erum svo mikið inni við á Íslandi og höfum því lært snemma að nota inniröddina okkar – það er svo oft sussað okkur og okkur sagt að hafa ekki of hátt. Er það ekki? Þetta má til dæmis sjá í messusöng, þá lætur fólk nú yfirleitt lítið fyrir sér fara. Það er í það minnsta eitthvað í menningu okkar sem veldur því að við syngjum ekki hátt þegar við komum saman, ekki nema að það sé orðið mikið stuð í samkvæminu,“ segir Lísa og hlær. Hún bendir á að hlutverk hennar sem söngkennara sé ekki síst að auka sjálfstraust og fá fólk til að þora að syngja af aðeins meiri krafti en það hefur áður gert. Söngtæknin skiptir miklu máli en hugarfarið er ekki síður mikilvægt.

Í því skyni hefur hún meðal annars birt á Spotify jákvæðar staðhæfingar fyrir söngvara sem finna má undir nafni hennar, Elísabet Ólafsdóttir. Jákvæðar staðhæfingar geta verið öflugt verkfæri þegar breyta á hugarfari. Það er nauðsynlegt fara markvisst í að breyta neikvæðum hugsunum í jákvæðar, byggja upp sjálfstraust og trú á eigin getu og hæfileika. Jákvæðar staðhæfingar geta því nýst öllum  sem syngja nú þegar eða langar til að að læra að syngja og njóta þess.

Sveigjanlegur kennslutími

„Mér finnst gaman að kenna öllum og þar skiptir aldur engu máli eða hvar fólk er statt tæknilega í söng. Allir hafa möguleika á að bæta sig.“

Lísa býður upp á einkakennslu fyrir alla aldurshópa, börn og fullorðna: „Ég vil gjarnan reyna að hafa tíma hjá börnum í föstum skorðum en það þarf meiri sveigjanleika hjá fullorðnum. Sumir vinna til dæmis vaktavinnu og geta augljóslega ekki alltaf mætt á sama tímanum.“

Söngtímar eru jólagjöf sem gefur lengi – sannkölluð upplifun

Á vefsíðunni vocal-lisa.com er hægt að kaupa gjafabréf í söngtíma til að gefa í jólagjöf, allt frá einu upp í 10 skipti í einkatíma ásamt tíma hljóðveri. Vart er hægt að hugsa sér betri jólagjöf fyrir þann sem þráir að syngja og bæta sönghæfni sína. Á vefsíðunni eru líka ítarlegar upplýsingar um margt sem hefur verið drepið á hér, bakgrunn Lísu, CVT-söngtæknina, söngnámskeið, verðskrá og margt fleira. Vocal-Lísa er líka með lifandi Facebook-síðu undir heitinu Vocal-Lisa.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum