fbpx
Sunnudagur 28.apríl 2024
FókusKynning

Þjóðvegaborgarinn í ekta sveitastemningu

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 5. maí 2018 16:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hamborgarar skipa veglegan sess á matseðli Litlu kaffistofunnar og eru mjög vinsælir og hefur Litla kaffistofan fengið mjög góða dóma fyrir þá. Í boði eru ostborgari, grandborgari með beikoni og eggi, beikonborgari og vegan-borgari. Fiskur og franskar eru líka vinsæll réttur af grillinu.

„Ég held að fólk sæki hingað meðal annars til að losna við áreiti og þann stanslausa eril sem er á flestum stöðum í borginni. Hér er engin tónlist og engir myndskjáir. Þetta er dálítið eins og að koma í heimsókn í sveitina og gæða sér á einhverju þjóðlegu, brauði með síld, flatkökum með hangikjöti og svo framvegis. Við höfum kappkostað að varðveita þennan heimilislega og þjóðlega karakter sem ávallt hefur verið yfir Litlu kaffistofunni,“ segir Katrín Hjálmarsdóttir, sem hefur rekið Litlu kaffistofuna við Suðurlandsveg síðan 1. nóvember árið 2016.

„Við höldum í þetta gamla hér og erum til dæmis með kjötsúpuna og heimabakað brauð áfram. En við höfum líka bætt við tertum og kökum sem eru bakaðar á staðnum og tekið upp þann sið að vera með heimilismat í hádeginu alla virka daga ásamt súpu dagsins.“

„Í vondu veðri finnst fólki gott að gera hlé á ferðinni, setjast hérna og hvíla sig. Fjölskyldufólki finnst líka gott að koma hingað og fá sér heitt súkkulaði og vöfflu eða kaffi og með því. Þá spillir ekki fyrir að verðið er hagstætt,“ segir Katrín.

Erlendum ferðamönnum fer mjög fjölgandi á Litlu kaffistofunni að hennar sögn en Íslendingar eru áfram í miklum meirihluta.

Litla kaffistofan er opin frá 7 til 18 virka daga og 8 til 18 um helgar. Sjá nánar á www.facebook.com/Litla-Kaffistofan.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Kynning
13.12.2023

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni

Hlífðarpúðar sem aðlagast líkamanum vegna einstakrar tækni
Kynning
28.11.2023

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“

Skúli fann heilsuna aftur í Póllandi – „Lífsgæði mín löguðust umtalsvert frá því að vera algjör sjúklingur eða öryrki yfir í að komast aftur á vinnumarkaðinn“
Kynning
31.03.2023

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl

Glæsilegir vinningar í Páskaleik DV: Taktu þátt fyrir 5. apríl
Kynning
29.03.2023

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum

Miklu meiri lífsgæði með Protis Liðum