Konur sem eru með of háan blóðþrýsting áður en þær verða óléttar eru í mun meiri hættu en aðrar konur að missa fóstur meðan á meðgöngu stendur. Þetta leiðir ný rannsókn vísindamanna við Eunice Kennedy Shriver National Institute of Child Health and Human Development í Maryland í ljós.
Rúmlega 1.200 konur, 18 til 40 ára, tóku þátt í rannsókninni og áttu þær það allar sameiginlegt að vera að reyna að eignast barn og að hafa misst fóstur að minnsta kosti einu sinni áður.
Fylgst var með ýmsum atriðum í rannsókninni, blóðþrýstingi þar á meðal. Konur með of háan blóþrýsting voru allt að tuttugu prósent líklegri en aðrar konur til að missa fóstur, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar.
Í umfjöllun Mail Online kemur fram að í fyrrasumar hafi rannsókn leitt í ljós að með blóðprufu væri hægt að áætla líkurnar á því að kona missi fóstur. Hægt væri að skoða magn ákveðins hormóns í blóðinu og út frá því meta líkurnar á fósturmissi.