fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Fréttir

Mayeth og Pjetur bíða í óvissunni: „Mann langar til að öskra og bölva og berja, en maður gerir það ekki“

Kristinn H. Guðnason
Föstudaginn 24. maí 2019 09:00

Pjetur og Mayeth Hafa ekki fengið frekari svör eða skýringar frá Útlendingastofnun.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í síðustu viku greindi DV frá máli hjónanna Pjeturs og Mayeth Gudmundsson, og dóttur þeirra, Aimee Áslaugu. Vísa á Mayeth úr landi vegna þess að fjölskyldan getur ekki sýnt fram á nægar tekjur, en hjónin hafa verið gift í næstum ellefu ár. Mayeth er frá Filippseyjum og dóttir þeirra, sem er tíu ára gömul, með tvöfalt ríkisfang.

Fjölskyldan býr nú óvissu og býst við brottvísun Mayeth með lögregluvaldi. Fresturinn rennur út í dag, föstudaginn 24. maí, og eftir það verður Útlendingastofnun að taka ákvörðun. Síðan bréfið barst hefur ekki verið haft samband við hjónin. Mayeth skilur ekki íslensku og Pjetur á erfitt með að fylgjast með fréttum í sjónvarpi og á tölvuskjá vegna veikinda.

Mayeth
Með bréfið um synjun á dvalarleyfinu.

Fer ekki út úr húsi

Mál Pjeturs og Mayeth var rætt á Alþingi í vikunni en það var Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sem spurði ráðherra út í óréttlætið.

„Við höfum líka mannúð og í þessu tilviki, þegar við erum að tala um svona mál, að við erum að fara að sundra fjölskyldu og við erum að senda móðurina úr landi. Ég spyr: Er ekki eitthvað að svona kerfi, hæstvirtur forsætisráðherra? Og er það ekki í okkar höndum að reyna að koma í veg fyrir og girða fyrir að svona lagað geti átt sér stað?“ spurði Inga.

Katrín Jakobsdóttir svaraði á þá leið að hún teldi fyllstu ástæðu til þess að þingmannanefnd færi yfir mál sem þessi.

„Við teljum að það þurfi að skoða málsatvik betur. Það er auðvitað mikilvægt að framkvæmd laganna sé með þeim hætti sem þingið ætlaði sér og vissulega er það svo, eins og háttvirtur þingmaður Inga Sæland nefnir, að mannúðarsjónarmið eiga þar að vera leiðarljós.“

Þrátt fyrir þetta hefur Pjetur ekkert heyrt meira frá Útlendingastofnun eftir að fréttin birtist. Í dag, föstudag, á Mayeth að vera farin af sjálfsdáðum úr landi.

„Konan mín hefur ekki fengið nein bréf eða tölvupóst og við bíðum bara. Dóttir mín hefur ekki farið í skólann og konan vill helst ekki fara út. Hún er algerlega niðurbrotin,“ segir Pjetur sem ber sig vel, en það er augljóslega þungt yfir honum og málið hefur tekið á.

Aimee Áslaug Hefur ekki farið í skólann síðan bréfið barst.

Vill afsökunarbeiðni

Pjetur hefur ekki fylgst vel með umræðunni um málið. Vegna veikinda og höfuðverkja á hann erfitt með að horfa lengi á sjónvarp og lesa af tölvuskjá. Hann er ánægður með að vakin hafi verið athygli á málinu, en ekki endilega sáttur við þá bylgju reiði sem gerði vart við sig á samfélagsmiðlum.

„Reiði gerir engum gott, en óréttlæti þarf að leiðrétta,“ segir Pjetur. „Kannski er ég ósanngjarn en mér finnst Útlendingastofnun skulda okkur afsökunarbeiðni. Þetta tekur á alla aðstandendur. Þetta hefur líka tekið svo mikinn tíma og svo mikið ósamræmi er í þessari meðferð. Ég veit um nokkra sem hafa útvegað sér falskan atvinnusamning og fengið kennitölu á þremur vikum. Eftir langt hjónaband ætti dvalarleyfi að vera sjálfsagður hlutur.“

Eruð þið búin að gera einhverjar ráðstafanir?

„Nei, ég verð með kaffið tilbúið þegar þeir koma og vísa henni úr landi. Mann langar til að öskra og bölva og berja, en maður gerir það ekki. Þetta er orðið svo fáránlegt að maður tekur þessu með hálfgerðu brosi. Ég er ekki bjartsýnn á að við fáum nokkur svör.“

 

Óvissa um tíma brottvísunar

Útlendingastofnun hefur enn ekki svarað spurningum DV efnislega en áréttaði þó að þær tilvísanir sem stofnunin benti á í síðustu viku varðandi heimildir til að víkja frá skilyrðum hefðu verið rangar. Þær ættu einungis við um endurnýjun dvalarleyfa. Engar heimildir eru til varðandi frumumsóknir.

Bent hefur verið á að hægt sé að kæra málið og geti það þá farið alla leið upp í dómstóla. Ábyrgðin á úrskurðinum er hins vegar hjá Útlendingastofnun og verði málið ekki kært, eins og útlit er fyrir að verði raunin, þarf stofnunin að taka ákvörðun um brottvísun og hafa samband við lögreglu. Stofnunin gat ekki svarað innan hvaða tíma það myndi gerast.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 14 klukkutímum

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa

Yfirmaður úkraínsku leyniþjónustunnar er með áætlun tilbúna til að mæta yfirvofandi stórsókn Rússa
Fréttir
Í gær

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“

Grænkerar harma auglýsingar forsetaframbjóðenda – „Borða pulsur úr gösuðum þjáðum svínum“
Fréttir
Í gær

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“

Sendiherra Trump á Íslandi þykist vera kúreki í kosningabaráttu sinni – „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Fréttir
Í gær

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur

Svívirðileg brot gegn sjö ára stjúpdóttur
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka

Móðirin í Kópavogi ákærð fyrir að reyna að drepa eldri soninn líka
Fréttir
Fyrir 2 dögum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum

Björn Leví: Þess vegna telja Píratar að ekki sé hægt að vinna með Sjálfstæðisflokknum