fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Grindvíkingar ævareiðir yfir pitsupartýi Valkyrjanna – „SKAMMIST YKKAR!!!“

Ritstjórn DV
Miðvikudaginn 22. apríl 2026 22:42

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bæjarstjórn Grindavíkur stóð í dag fyrir fjölmennum íbúafundi fyrir íbúa, kjörna fulltrúa og fulltrúa frá fasteignafélaginu Þórkötlu. Þar kynntu bæjarfulltrúar sýn sína á endurreisn bæjarins. Þingmönnum Suðurkjördæmis var sérstaklega boðið til fundarins en eins var Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra boðið að ávarpa fundinn.

Kristrún komst þó ekki til fundarins og sendi Benedikt Árnason ráðuneytisstjóra í sinn stað.  Í gærkvöldi tók Kristrún á móti gestum, stöllum sínum úr ríkisstjórn, í pitsapartý á heimili sínu. Frá þessu greinir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra í færslu á Facebook. Þar birti Þorgerður mynd af sér, Kristrúnu og Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, en með myndinni skrifar Þorgerður:

„Gleðilegt sumar, kæru landsmenn. Mættar í pizzupartý til Kristrúnar. Okkar besta forsætisráðherra.“

Í yfirlýsingu frá aðstoðarmanni forsætisráðherra eftir að færsla Þorgerðar og fréttin birtist kemur fram að forsætisráðherra fékk boð á fundinn síðasta föstudag. Á mánudag lét hún vita að hún kæmist ekki á fundinn, eigi að síður var þátttaka hennar auglýst án samráðs.

Sjá einnig: Íbúafundur í Grindavík: Forsætisráðherra afboðaði sig 2 dögum fyrr og þátttaka hennar auglýst án samráðs

Grindvíkingar hafa látið í sér heyra í athugasemdum við  og um færsluna.

„Þvílík hræsni!!! Ekki gátuð þið mætt í kvöld á fund í Grindavík sem þið voruð boðin á, Grindavík verður byggð aftur upp hvort sem þið hjálpið til eða ekki. Áfram Grindavík,“ skrifar sjómaðurinn og Grindvíkingurinn Páll Árni Pétursson í athugasemd við færslu Þorgerðar. Hann skrifar eins færslu á Facebook þar sem hann segir þetta köld skilaboð til Grindvíkinga.

„Gæti pottþétt græjað frábærar Papa’s pizzur fyrir næsta íbúafund í Grindavík ef það er það sem þarf til að Kristrún sýni Grindvíkingum þá virðingu að mæta og hlýða á þá,“ skrifar björgunarsveitamaðurinn Sigurjón Veigar Þórðarson sem hefur tekið þátt í rýmingaraðgerðum í Grindavík.

Hallgrímur Hjálmarsson, sonur formanns bæjarráðs Grindavíkur, spyr hvort hægt sé að gefa meiri skít í bæjarfélagið.

„Er hægt að gefa meiri skít í Grindavík og Grindvíkinga. Valdi hún ekki að vera forsætisráðherra? Gegna ekki skyldur æðsta embættisstarfi landsins?“

Guðrúnu Ámundadóttur er mikið niðri fyrir, en Lúðvík Pétursson, sem lét lífið eftir að hann féll í sprungu í Grindavík í janúar árið 2024, var tengdafaðir sonar hennar. Guðrún segist nú hafa misst allt álit á ríkisstjórninni.

„Kristrún Frosta…ertu að grínast? Grindavíkurbær skiptir semsagt engu máli,“ skrifar Guðrún og segir að hvorki Kristrún né hinar valkyrjurnar geti sett sig í spor Grindvíkinga. Hvað þá í spor aðstandenda Lúðvíks sem enn bíða svara. „Nei, núna missti ég allt álit á ríkisstjórninni. Munið bara að það erum við skattgreiðendurnir sem borgum launin ykkar. SKAMMIST YKKAR!!!“

Sólveig Ólafsdóttir skrifar. „Mikilvægar í pizzupartý þessar valkyrjur. Mikilvægur fundur í Grindavík og forsætisráðherra upptekin í pizzupartý. Gleðilegt sumar.“

Fleiri hafa gagnrýnt forsætisráðherra. Má þar nefna gagnrýnandann sjálfan Jón Viðar Jónsson sem segir aumt af Kristrúnu að mæta ekki til íbúafundarins.

„Heldur er nú aumt af Kristrúnu að „hafa ekki tíma“ til að hitta Grindvíkinga að máli á borgarafundi þeim sem þar var haldinn í dag. Sömuleiðis þeim stjórnmálamönnum öðrum sem þangað voru boðaðir og létu ekki sjá sig.“

Björn Ingi Hrafnsson, aðstoðarmaður formanns Miðflokksins, skrifar að Kristrún hafi afboðað sig á íbúafundinn vegna anna. Annirnar hafi reynst vera pitsapartý.

„Í fréttum af fjölmennum íbúafundi í Grindavík kom fram að til hafi staðið að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra myndi kynna afstöðu ríkisstjórnarinnar til endurreisnar Grindavíkur á fundinum en hún afboðaði komu sína sökum anna. Annirnar voru pizzaparty með Toggu og Ingu.“

Ljóst er að mörgum Grindvíkingum sárnaði yfir pitsumyndinni af valkyrjunum.

Ásthildur Lóa Þórsdóttir, þingmaður Flokks fólksins, tekur fram í athugasemd við færslu Magnúsar Gunnarssonar að þær valkyrjur hafi ætlað að hittast klukkan átta í kvöld. Íbúafundurinn hófst klukkan 16:30. Því hafi pitsapartýið ekki verið ástæða þess að Kristrún komst ekki til íbúafundar sem boðað var til með skömmum fyrirvara. Sjálf mætti Ásthildur á fundinn.

Eftir fundinn var leikur Grindavíkur og Vals í undanúrslitum úrslitakeppni karla í körfu. Leikurinn fór fram á heimavelli Grindavíkur, HS Orku-höllinni. Sumir sáu sér fært að mæta og aðstoða við að grilla.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 19 klukkutímum

Hannes Valle hefur játað svívirðileg brot

Hannes Valle hefur játað svívirðileg brot
Fréttir
Fyrir 20 klukkutímum

50 handteknir í alþjóðlegri aðgerð gegn skipulagðri brotastarfsemi –  samstarf íslensku lögreglunnar við Europol

50 handteknir í alþjóðlegri aðgerð gegn skipulagðri brotastarfsemi –  samstarf íslensku lögreglunnar við Europol