Embætti landlæknis braut ekki lög þegar skurðlæknir á sextugsaldri var sviptur starfsleyfi í desember árið 2024. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem sýknaði embættið af kröfum læknisins, en áður hafði heilbrigðisráðuneytið staðfest sviptinguna.
Málið á sér langa forsögu en læknirinn hafði áður verið sviptur starfsleyfi til bráðabirgða árið 2018 vegna óvænts atviks auk fimm annarra mála sem höfðu ratað inn á borð landlæknis. Í tengslum við þá ákvörðun var þremur læknum falið að meta starfshæfni læknisins og niðurstaðan var sú að hann hefði gert ámælisverð mistök í starfi sem líklega mætti rekja til heilsubrests. Var tekið fram að læknirinn þyrfti meðferð og eftirlit í lengri tíma, endurmenntun og handleiðslu til að geta starfað við lækningar. Læknirinn afsalaði sér þá starfsleyfi og fékk aftur tímabundið og takmarkað leyfi í janúar 2019 og ótakmarkað leyfi í desember sama ár gegn heiðursmannasamkomulagi um að skila reglulega inn læknisvottorðum um góða heilsu. Þessi vottorð skiluðu sér þó seint og illa.
Eftir þetta bárust áfram ítrekaðar kvartanir um störf læknisins. Meðal annars komst landlæknir að þeirri niðurstöðu að læknirinn hefði gerst sekur um alvarleg mistök við fæðingu barns árið 2018, vanrækt lögboðnar skyldur við veitingu þjónustu árið 2020, vanrækt lögboðnar skyldur með alvarlegum hætti þegar sjúklingur leitaði til hans vegna kviðverkja og blæðinga árið 2022. Eins var endurupptekið eldra mál þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að læknirinn hefði gerst sekur um röð mistaka og sýnt af sér vanrækslu við umönnun og meðferð sjúklings á árinu 2015. Með vísan til þessara mála ákvað landlæknir að svipta lækninn leyfi þar sem embættið hefði ítrekað haft til meðferðar kvartanir sem komið hefðu upp við störf hans.
Sjá einnig: Læknir sviptur starfsleyfi - Sagður hafa lagt sjúklinga í hættu
Taldi brotið gegn stjórnarskrá
Læknirinn taldi að verulegir annmarkar væru á ákvörðun landlæknis. Atvinnuréttindi séu stjórnarskrárvarin og eigi ekki að sæta skerðingu nema almannahagsmunir krefjist þess. Slíkar skerðingar þurfi að uppfylla strangar kröfur, meðal annars um meðalhóf og jafnræði. Taldi læknirinn sig ekki hafa brotið gegn skyldum sínum með þeim hætti að það réttlætti sviptinguna. Taldi hann einnig að embætti landlæknis hefði persónulega óvild í sinn garð.
Landlæknir mótmælti öllum málatilbúnaði læknisins og vísaði til úrskurðar heilbrigðisráðuneytisins sem staðfesti sviptinguna, en sá úrskurður bæri með sér að mál læknisins hefði verið rannsakað til hlítar og í samræmi við reglur stjórnsýsluréttar. Umræddur læknir hefði ítrekað brotið gegn starfsskyldum sínum og hefðu vægari úrræði en svipting ekki borið árangur. Meðal annars hefði læknirinn verið beittur eftirlitsúrræðum sem „skiluðu ekki nokkrum árangri og heilbrigðisþjónustu þeirri er hann veitti hafi verið verulega ábótavant og sett sjúklinga í hættu í fleiri en einu tilviki.“
Óforsvaranlegt að leyfa lækninum að starfa áfram
Taldi landlæknir að gögn málsins sýndu að það væri hreinlega óforsvaranlegt að leyfa lækninum að hafa starfsleyfi og með engu móti hægt að réttlæta að hann starfi sem læknir í dag. Vísaði landlæknir sérstaklega til þeirra atvika sem urðu til þess að læknirinn var sviptur starfsleyfi tímabundið árið 2018 en þá hafi hann ekki sinnt alvarlega veikum sjúklingi og ekki brugðist við þegar ástand sjúklingsins versnaði heldur haldið sig heima þrátt fyrir að vera á bakvakt. Gögn málsins beri með sér að lækninum hafi ítrekað orðið á alvarleg mistök og gerst sekur um meiriháttar vanrækslu í fjölmörg skipti frá árinu 2014 til í það minnsta ársins 2022. Ljóst sé að endurhæfing sem var reynd í kjölfar sviptingarinnar árið 2018 hafi ekki haft þau áhrif að manninum sé stætt að starfa sem læknir.
„Stefndi [Embætti landlæknis] telur ljóst af gögnum málsins og hinum umdeilda úrskurði að ekki sé réttlætanlegt að stefnandi starfi sem læknir. Því hafi stefnda borið skylda til að svipta hann starfsleyfi. Hvorki stefnandi né nokkur annar heilbrigðisstarfsmaður getur átt réttmætar væntingar til að halda starfsleyfi eftir að hafa gerst sekur um svo alvarleg og ítrekuð brot sem stefnandi hefur gerst sekur um.“
Mál læknisins hafi fengið ítarlega skoðun, þar sem fjöldi sérfræðinga kom við sögu, og ákvarðanir byggt á hlutlausum og málefnalegum sjónarmiðum. Embættið hafi ekki sýnt lækninum nokkuð annað en kurteisi í samskiptum.
Rétt og nauðsynlegt
Héraðsdómur Reykjavíkur rakti að sviptingin hefði ekki verið fyrirvaralaus heldur átt sér stað í kjölfar málsmeðferðar þar sem læknirinn naut meðal annars andmælaréttar. Framlögð gögn renni stoðum undir það að ástæður sviptingarinnar hafi átt við rök að styðjast enda hafi landlæknir ítrekað komist að þeirri niðurstöðu að mistök og vanræksla læknisins hafi getað ógnað lífi og heilsu sjúklinga hans. Landlæknir hafi ekki farið fram úr meðalhófi heldur þvert á móti gefið lækninum kost á að bæta ráð sitt.
Í niðurstöðukafla dómsins segir:
„Að framangreindu virtu og gögnum málsins verður ekki séð að málsástæður stefnanda er lúta að því að farið hafi verið gegn meðalhófsreglu, rannsóknarreglu og leiðbeiningarskyldu stjórnsýslulaga við töku ákvörðunar í máli stefnanda eigi við rök að styðjast. Rakið hefur verið að stefndi leit heildstætt til allra atvika er varða stefnanda og störf hans í aðdraganda hinnar umþrættu ákvörðunar. Þess hafði verið freistað að beita vægari úrræðum, honum veitt svigrúm til endurhæfingar, gert að starfa undir eftirliti og skila læknisvottorðum og veitt áminning. Þrátt fyrir framangreint héldu kvartanir vegna alvalegra atvika áfram að berast vegna starfa hans.“
Héraðsdómur taldi því að fullt tilefni hafi verið til sviptingarinnar og að landlæknir hefði ekki brotið lög eða stjórnarskrá. Ákvörðunin hafi verið nauðsynleg og réttlætanleg með hliðsjón af hagsmunum sjúklinga. Embætti landlæknis var því sýknað og lækninum gert að greiða milljón í málskostnað.