
Landsréttur breytti nokkuð í gær dómum Héraðsdóms Suðurlands yfir sakborningum í Gufunesmálinu. Dómar yfir þremur helstu sakborningum, sem ákærðir voru fyrir manndráp vegna láts Hjörleifs Hauks Guðmundssonar, voru mildaðir. Þeir Stefán Blackburn og Lúkas Geir Ingvarsson voru dæmdir í 16 ára fangelsi en höfðu fengið 17 ára dóm í héraði. Dómur yfir Matthíasi Birni Erlingssyni var mildaður um tvö ár, úr 14 árum niður í 12 ár.
Landsréttur breytti einnig dómum héraðsdóms yfir tveimur ungum manneskjum sem voru ákærðar fyrir vægari brot í tengslum við málið. Ungur maður hafði verið sakfelldur í héraðsdómi fyrir peningaþvætti, en refsingu yfir honum frestað, fyrir það að samþykkja að taka við millifærslu af reikningi Hjörleifs heitins yfir á sinn reikning og millifæra hana (eða leyfa að hún yrði millifærð) af sínum reikningi yfir á reikning Matthíasar.
Maðurinn neitaði sök í málinu á þeim forsendum að hann hefði ekki vitað að um væri að ræða fjármuni sem voru ávinningur af refsiverðu broti. Byggði hann á því að honum hefði verið hótað og hann hafi verið mjög hræddur við tvímenningana.
Landsréttur sýknaði þennan mann í dómi sínum sem kveðinn var upp á miðvikudag.
Í aðdraganda að frelsissviptingu Hjörleifs var hann í samskiptum á Snapchat við „Birtu Sif“, stúlku sem hann taldi vera 17 ára. Var þar í raun um að ræða Lúkas Geir. „Birta Sif“ mælti sér mót við Hjörleif fyrir utan heimili hans í Þorlákshöfn. Til að sannfæra Hjörleif um að koma út af heimili sínu og stíga inn í bíl þar fyrir utan þurfti Lúkas Geir kvenrödd inn í hlutverkið og fékk konu um tvítugt til að hringja í Hjörleif og segja að koma út.
Konan sem tók þetta að sér var ákærð fyrir hlutdeild í frelsissviptingu og ráni. Hún neitaði sök á þeim forsendum að hún hafi ekki vitað að til stæði að frelsissvipta Hjörleif og beita hann ofbeldi, hún hafi staðið þeirri trú að til stæði að kúga út úr honum fé með því að hóta honum afhjúpun á rafrænum samskiptum hans við unglingsstúlku (eða aðila sem hann taldi vera unglingsstúlku). Framburður þeirra Lúkasar Geirs og Stefáns Blackburn studdu þennan framburð konunnar.
Dómari í héraði taldi að ákæra hefði þurft konuna fyrir hlutdeild í tilraun til fjárkúgunar, en ekki hlutdeild í frelsissviptingu og ráni, en að ekki væri hægt að sakfella sakborning fyrir annað en það sem kemur fram í ákæru.
Landsréttur komst að annarri niðurstöðu og telur að athæfi konunnar hafi falið í sér hlutdeild í brotunum gegn Hjörleifi enda hefði hún mátt vita að honum væri hætta búin er hann stigi inn í bílinn til þeirra Stefáns Blackburn og Lúkasar Geirs. Hins vegar fellst Landsréttur á að ekki sé hægt að fullyrða að hún hafi vitað af því ofbeldi sem raunverulega var beitt gegn Hjörleifi. „Verður það niðurstaða dómsins að þáttur ákærðu í aðdraganda frelsissviptingar brotaþola uppfylli hlutræn skilyrði til að teljast hlutdeild í frelsissviptingu brotaþola, en ákærða hefur ekki verið borin sökum um hlutdeild í fjárkúgun gagnvart brotaþola,“ segir í niðurstöðu Landsréttar sem sakfelldi konuna fyrir hlutdeild í frelsissviptingu.
Konan hefur ekki áður sætt refsingu og hafði það áhrif á ákvörðun refsingar yfir henni. Var hún dæmd í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi.
Dóm Landsréttar í málinu má sjá hér.