

Hjólabrettakappar eru bálreiðir yfir áformum borgarinnar um að nota Ingólfstorg undir sölubása og götumarkað í allt sumar. Frá þessu greindi Vísir í dag.
Torgið hefur áratugum saman verið samkomustaður hjólabrettakappa á sumrin og nýlega kom borgin til móts við íþróttina með því að koma upp nýjum köntum á torgið sem hannaðir voru með hjólabrettabrellur í huga.
Það var síðdegis í gær sem borgin birti myndskeið á samfélagsmiðlum þar sem auglýst var eftir áhugasömum aðilum til að reka sölubása á Ingólfstorgi í allt sumar.
Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri segir hjólabrettafólkið ekki eitt um að koma af fjöllum í þessu máli og segir þessa ákvörðun hafa verið tekna án samráðs. Ætlar Heiða að gera sitt besta til að tryggja að torgið verði áfram samkomustaður íslensku hjólabrettasenunnar.
„Fréttir af breytingu á Ingólfstorgi komu ekki bara hjólabrettafólki á óvart. Mér finnst það óhugsandi satt að segja að breyta þessu rótgróna torgi sem við höfum hannað fyrir hjólabrettafimi án samráðs eða auglýsingar. Þar er fallegt mannlíf og fólk hópast bæði til að gera hjólabrettabrellur og svo fólk eins og ég sem kem og horfi á. Ég mun gera mitt til að sjá til þess að torgið verði áfram stór partur í íslensku hjólabretta senunni eins og verið hefur í áratugi.“
View this post on Instagram