

Verðbólga á ársgrundvelli mælist nú 5,2 prósent en var í síðasta mánuði 5,4 prósent og sígur þar með eilítið niður á við.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni.
Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í apríl 2026, er 683,8 stig (maí 1988=100) og hækkar um 0,81 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 547,0 stig og hækkar um 0,85 prósent frá mars 2026.
Um það sem helst hafði áhrif til hækkunar á vísitölunni segir Hagstofan að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) hafi aukist um 0,8 prósent (áhrif til hækkunar á vísitölunni voru 0,16 prósent), verð á bensíni hækkaði um 12,1 prósent ( sem hækkaði vísitöluna um 0,21 prósent), verð á dísel hækkaði um 19,7 prósent (0,16 prósent hækkun á vísitölunni) og verð á flugfargjöldum til útlanda hækkaði um 6,1 prósent (0,14 prósent hækkuna á vísitölu)
Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,2 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,8 prósent.