fbpx
Miðvikudagur 29.apríl 2026
Fréttir

Reyndur ferðabloggari um Ísland – „Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig“

Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 29. apríl 2026 08:00

Nina nefnir þrjár leiðir til að ferðast um Ísland.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Bandarískur ferðabloggari segir marga svitna yfir verðlagningu á Íslandi, sérstaklega eftir að ferðamannasprengjan sprakk fyrir nokkrum árum síðan. Hún nefnir hins vegar leiðir til þess að komast hjá miklum kostnaði og greinir frá hvað sé dýrast og hvað ódýrast á landinu.

„Ísland er eitt af þessum löndum sem marga dreymir um… en fá svo kvíðakast þegar þeir fara að skða verðin,“ segir bandaríski ferðabloggarinn Nina, sem bloggar á síðunni „Where in the World is Nina?“. Hún hefur gert það að atvinnu sinni að ferðast um heiminn í fimmtán ár og í nýlegum pistli tekur hún ferðir til Íslands fyrir og kostnaðinn við þær.

Nina segir að flugið sem slíkt sé ekki mikið vandamál. Vandamálin mæti ferðamönnum við lendinguna. Segir hún að ferð sín til Íslands hafi verið æðisleg en jafn framt ein dýrasta ferð sem hún hafi farið í.

Þrjár leiðir

Segir hún að gera megi ráð fyrir 100 til 400 dollara útgjöldum fyrir hvern einstakling á dag á Íslandi. En það gerir um 12 til 50 þúsund krónur. Þetta fari allt eftir því hvaða lúxus ferðamaðurinn er tilbúinn að veita sér.

Með ódýrustu leiðinni sé hægt að komast upp með 100 til 150 dollara á dag. Þar muni mestu um gistinguna og matinn.

„Þetta er ódýrasta leiðin til að ferðast um Ísland án þess beinlínis að pína sig. Þú leigir camper-bíl, eldar flest allar máltíðirnar, sleppir óþarfa ferðum og hefur hlutina einfalda,“ segir Nina.

Næst ódýrasti ferðamátinn á Íslandi kostar um 150 til 250 dollara á dag. Það er allt að 30 þúsund krónum. Hér er um blandaða ferð að ræða.

„Þú bókar blöndu af gistiheimilum og ódýrum hótelum, sumar máltíðir borðar þú á veitingastað en kaupir einnig í matinn í verslun og ferð kannski í tvær ferðir,“ segir Nina. „Eða þá að þú leigir dýrari camper-bíl í staðinn fyrir gistiheimili. Þetta er það sem flestir gera.“

Nina segir að hægt sé að ferðast um Ísland án þess að vera í kvíðakasti yfir kostnaðinum.

Dýrasti ferðamátinn kostar á bilinu 250 til 400 dollara á dag. Hér er litlu til sparað.

„Hótel, borðar oft úti, ferð í margar ferðir og hugsar lítið um að spara aurinn,“ segir Nina. „Þetta getur auðveldlega kostað meira ef þú passar þig ekki.“

Bendir hún á að eins og á mörgum öðrum ferðamannastöðum þá skiptir árstíminn miklu máli. Sjálf fór hún í september sem er ekki dýrasti tíminn en engu að síður er ekkert verulega ódýrt á þeim tíma.

Óvæntur kostnaður

Nefnir hún einnig að stundum geti kostnaðurinn á Íslandi komið ferðamönnum á óvart. Til að mynda gjaldtaka á bílastæðum. „Yfirleitt ekki mikið í hvert skipti en þegar þú stoppar oft á dag við ferðamannastaði safnast þetta hratt upp,“ segir Nina.

Einnig gjaldtaka á klósettum og við sturtur á tjaldsvæðum. Bensínkostnaðurinn sé mikill þar sem vegalengdirnar séu oft miklar. Maturinn sé dýr, sérstaklega í vegasjoppum, og það geti verið dýrt að kaupa sér föt fyrir ferðina sjálfa.

Gerðu áætlun

Mælir Nina með því að komast hjá kostnaði með að velja ferðirnar vel, leigja camper-bíl, elda sem mest sjálf, kaupa mat í stórmörkuðum og kaupa áfengi á flugvellinum.

„Ísland er ekki ódýrt en það þarf ekki að vera óreiðukennt líka,“ segir Nina. „Gerðu áætlun, gerðu ráð fyrir meiri kostnaði en þú vilt borga og einbeittu þér að því sem þú vilt gera í ferðinni. Þannig getur þú notið ferðarinnar án þess að vera sífellt að hugsa um kostnaðinn.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Í gær

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“

Kjúklingaskítsfýla veldur Skagamönnum óþægindum – „Íbúar eiga ekki að þurfa að sætta sig við þetta. Punktur“
Fréttir
Í gær

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“