fbpx
Þriðjudagur 28.apríl 2026
Fréttir

Útvarpsstjarna í framboð

Ritstjórn DV
Þriðjudaginn 28. apríl 2026 17:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heimir Karlsson sem hefur lengi starfað í útvarpi og sjónvarpi og öðlast landsfrægð fyrir þau störf er meðal frambjóðenda í sveitarstjórnarkosningunum í næsta mánuði.

Heimir hefur verið einn af umsjónarmönnum morgunþáttarins Bítið á Bylgjunni en þar áður starfaði hann meðal annars sem íþróttafréttamaður. Heimir er meðal frambjóðenda í sveitarstjórnarkosningunum þann 16. maí næstkomandi, nánar tiltekið í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í sveitarfélaginu eiga 5 fulltrúar sæti í sveitarstjórn en í kosningunum í maí geta íbúar valið milli tveggja framboðslista. Í fyrsta lagi A lista- Framboðslista um öflugt samfélag í vaxandi sveitarfélagi og í öðru lagi Ö-lista Betri sveitar fyrir okkur öll. Heimir er í 7. sæti síðarnefnda listans og yrði því varamaður í sveitarstjórn en gæti mögulega tekið sæti í einhverri af nefndum sveitarfélagsins. Fram kemur raunar á listanum að Heimir heiti fullu nafni Karl Heimir Karlsson en það hefur farið lágt a.m.k. meðal þeirra sem þekkja ekki Heimi persónulega en hafa fylgst með störfum hans í fjölmiðlum.

Athygli vekur að í auglýsingu á vef Grímsnes- og Grafningshrepps vegna kosninganna eru skráð heimilisföng frambjóðenda en 6 af 10 frambjóðendum Ö-listans eru þar skráðir með ótilgreint heimilisfang. Virðist framboðið því einna helst vera stofnað vegna deilna sem eigendur húsa í frístundabyggðum hafa staðið í við sveitarfélagið sem hefur ekki viljað leyfa eigendum að skrá lögheimili sín í slíkum húsum.

Fyrir fólkið

Heimir hefur ritað tvær greinar um framboð Ö-listans á vefinn DFS sem er fréttavefur tileinkaður fréttum frá Suðurlandi.

Í þeirri fyrri segir hann meðal annars:

„Stjórnmálin eiga ekki fyrst og fremst að snúast um framboð, stjórnmálaflokka eða stefnuskrár þeirra. Þau eiga að snúast um almenning og óskir hans um betra og réttlátara samfélag. Kerfið á ekki að vera til fyrir stjórnmálamennina eða embættismennina. Kerfið á að vera til fyrir fólkið.“

„Mín reynsla segir mér að alltof margir stjórnmálamenn eigi það til að gleyma því fyrir hverja þeir starfa, sérstaklega þegar þeir komast til valda. Þeir gleyma því hvaðan valdið kemur — það kemur frá fólkinu. Það er ekki gott að búa í sveitarfélagi þar sem þetta blasir svona við. Það er einfaldlega vont. Það er vont að búa í sveitarfélagi þar sem meirihlutinn virðist hafa lítinn sem engan áhuga á að eiga raunverulegt samtal við íbúa, hlusta á sjónarmið þeirra eða taka mark á óskum þeirra.“

Í greininni nefnir Heimir engin tiltekin stefnumál en leggur áherslu á að Grímsnes- og Grafningshreppur geti orðið sveitarfélag sem sé stjórnað með hagsmuni íbúa að leiðarljósi. Hann nefnir ekki deilur um skráningu lögheimilis í frístundabyggð berum orðum en orð hans gefa óneitanlega til kynna að þær séu honum hugleiknar.

Listar

Í nýrri greininni fer Heimir yfir þann mun sem hann telur vera á framboðslistunum tveimur. Um A-listann segir Heimir:

„Það hefur vakið athygli margra í þessum kosningum að meiri- og minnihluti sveitarstjórnar undanfarin fjögur ár hafa nú tekið höndum saman og stillt sér upp á sama lista, A-listanum. Það eitt og sér ætti að fá fólk til að staldra við. Þegar þeir sem áttu að veita hvor öðrum aðhald enda saman í einu kosningabandalagi þá vaknar eðlileg spurning: Var ágreiningurinn aldrei raunverulegur, var hann aðeins sýndarmennska? Er þetta ekki einmitt það sem fólk er orðið þreytt á í stjórnmálum? Að sömu aðilarnir, sem sátu hvor sínum megin borðsins, sameinist svo þegar hentar til að verja sama kerfið, sömu völdin og sama verklagið? Margir myndu kalla það samtryggingu. Aðrir kalla það einfaldlega gamaldags pólitík.“

Segir Heimir að lokum að þeir íbúar Grímsnes- og Grafningshrepps sem vilji breytta stjórnarhætti í sveitarfélaginu ættu að kjósa Ö-listann.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fréttir
Fyrir 11 klukkutímum

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“

Hildur ómyrk í máli: „Það þarf að taka erfiðar ákvarðanir, það er alveg ljóst“
Fréttir
Fyrir 12 klukkutímum

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás í Kópavogi

Lögregla rannsakar stórfellda líkamsárás í Kópavogi
Fréttir
Í gær

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“

Jafn vel Hollendingum blöskrar verðlagið á Íslandi – „Þig grunar ekki hversu sjúklega gráðugir Íslendingar geta verið“
Fréttir
Í gær

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“

Gylfi Þór minnist móður sinnar sem var myrt – „Ég mun kveikja á kerti í kvöld“
Fréttir
Í gær

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss

Björgunarsveitir kallaðar út á hæsta forgangi eftir að sást til manns í gili við Háafoss
Fréttir
Fyrir 2 dögum

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“

„Þess vegna eru heimgreiðslur snákaolía“