Donald Trump virðist vera að upplifa pólitíska „gullöld“ sína þessa dagana, en á undanförnum vikum hefur forsetinn náð ýmsu í gegn bæði í innanríkis- og utanríkismálum. Því verður ekki neitað sama hver skoðun fólks er á sjálfum gjörningnum.
Þróunin hefur komið jafnvel gagnrýnendum hans á óvart og eru margir á því að staða hans hafi styrkst verulega á pólitíska sviðinu.
Einn helsti sigur Trump var samþykkt umfangsmikils fjárlagafrumvarps sem hann sjálfur kallaði „One Big Beautiful Bill“.
Í einfölduðu máli innihélt frumvarpið fjölmörg stefnumál sem Tump hefur lengi barist fyrir, meðal annars skattalækkanir á þjórfé, yfirvinnu og lífeyrissjóð og 25 milljarða dollara fjárveiting til loftvarna og landamæravörslu.
Gagnrýnendur hafa þó bent á að frumvarpið innihaldi skattalækkanir til auðugustu einstaklinganna í Bandaríkjunum en hinir efnaminni þurfi að axla byrðarnar, til að mynda með afnámi heilbrigðistrygginga hjá stórum hluta. Margir telja að lögin, þó verulega umdeild séu, marki stærsta löggjafarsigur Trumps frá endurkomu hans til valda.
Á sama tíma hefur forsetinn stigið fast til jarðar utanríkismálum. Bandarísk stjórnvöld, með stuðningi Trumps, gripu til hernaðaraðgerða gegn Íran eftir að átök brutust út í Miðausturlöndum. Loftárásir á kjarnorkutengd skotmörk voru framkvæmdar í samstarfi við Ísrael, og leiddu þær til vopnahlés, hversu lengi sem það varir, eitthvað sem margir höfðu talið óhugsandi
Þá hefur Trump einnig beitt þrýstingi innan Atlantshafsbandalagsins, þar sem hann hvatti aðildarríki til að auka hernaðarútgjöld sín í 5% af vergri landsframleiðslu og fékk aðildarríkin til að lúta vilja sínum í þeim efnum.
Á sviði dómsmála hefur forsetanum einnig gengið vel. Hæstiréttur Bandaríkjanna kvað nýverið upp úr með úrskurði sem styður við stefnu Trump-stjórnarinnar í innflytjendamálum og afmarkar vald lægri dómstóla í ákveðnum stjórnsýslumálum. Þá lauk málaferlum forsetans gegn CBS-sjónvarpstöðinni með sátt, þar sem sjónvarpsstöðin samþykkti að greiða honum 16 milljónir dollara fyrir að hafa birt viðtal, sem var klippt til með rangfærslum, við Kamölu Harris varaforseta.
Í ýmsum öðrum málum hefur forsetinn einnig fengið sínu framgengt. Með þrýstingi sínum tókst honum að knýja kanadísk stjórnvöld til að fella niður nýjan skatt á bandarísk tæknifyrirtæki.
Efnahagslegar vísbendingar hafa einnig verið honum í hag. Hlutabréfamarkaðir hafa náð nýjum hæðum og fjöldi ólöglegra innflytjenda sem ná landamærum hefur farið minnkandi, samkvæmt gögnum bandarískra yfirvalda.
Að mati pólitískra álitsgjafa, sum sumir hverjir eru ekki miklir aðdáendur forsetans, hefur árangur hans verið með ólíkindum á skömmum tíma. Þó pólitískt landslag sé áfram mjög skipt í Bandaríkjunum, benda síðustu vikur til þess að Trump hafi tryggt sér yfirhöndina.